Ægir - 01.08.1995, Síða 26
Þorvaldur
Garðarsson
krókakarl:
NÝJU LÖGIN ERU ENGIN
framtIðarlausn
Aðeins plástur á sárið
Þorvaldur Garðarsson er sveitastrák-
ur sem fæddist á Korpúlfsstöðum og
ólst upp í Grímsnesinu. Fyrsta skipið
sem hann átti hlut í var 11 tonna
Bátalónsbátur sem smíðaður var árið
1972 fyrir nýstofnað hlutafélag,
Smára hf., sem var fjölskyldufyrir-
tæki í eigu föður hans, Garöars Þor-
steinssonar, Þorvaldar og Guðmund-
ar bróður hans. Nokkrum árum síðar
bættist þriðji bróðirinn, Vilhjálmur, í
hópinn. Útgerðinni óx fiskur um
hrygg og um síðir átti fjöldskyldan
150 tonna stálbát sem gerður var út
frá Þorlákshöfn í mörg ár. Samtals var
Smári hf. með atvinnurekstur í Þor-
lákshöfn um 20 ára skeið.
Árið 1985 söðluðu þeir feðgar um,
seldu bátinn og byggðu upp fiskeldis-
stöð í eigu Smára hf. þar sem stundað
var lax- og bleikjueldi.
Það reyndist erfiður rekstur og árið
1991 varð sá rekstur gjaldþrota og bræð-
urnir sneru sér aftur að útgerð eftir lát
föður þeirra þetta sama ár.
„Við vorum meðal frumkvöðla í
bleikjueldinu. Það var mjög gaman að
fást við að byggja þetta upp og fást við
þessa ræktun og grátlegt að það skyldi
ekki geta gengið. Við sáum að þetta gat
ekki gengið aö þaö er betra að hætta fyrr
en síðar. Forsendurnar brugðust algjör-
lega. Þegar við byrjuðum að selja laxinn
vorum við að fá 11-13 dollara fyrir kíló-
ið en þegar viö hættum var verðiö kom-
iö niður í 6-6,5 dollara. "
Nafns vitjaö í draumi
Eina leiðin inn í sjávarútveginn á ný
lá í gegnum krókakerfið og þeir keyptu
sér 5,5 tonna plastbát sem var eins og
fyrri bátar sem þeir höfðu átt skírður Sæ-
unn Sæmundsdóttir.
„Það er saga bakvið þessa nafngift,"
segir Þorvaldur. „Þegar verið var að
smíða fyrsta bátinn í Bátalóni þá vitjaöi
móður minnar látin föðursystir hennar
sem hét Sæunn Sæmundsdóttir. Hún
bað stööugt um að fá að vera hjá henni
en móðir mín var í miklu uppáhaldi hjá
henni sem barn.
Þetta ágerðist eftir því sem leiö á
smíðatímann og að lokum var ákveðið
aö skíra bátinn í höfuöið á Sæunni. Þá
hætti móöur mína aö dreyma þessa
konu og hefur aldrei orðið hennar vör
síðan en ég er viss um að ég hef aidrei
verið einn um borð í Sæunni. Við höf-
um aldrei orðið fyrir neinum stórvægi-
legum óhöppum."
Þorvaldur hefur nú keypt bræður
sína út og rær einn á sumrin en með
háseta á línuveiðunum á veturna.
Hann var þó einn í vetur en segist ekki
gera það aftur, segist ekki vilja slíta sér
út á því. Hann hefur undanfarin 4 ár
veriö meðal 10 aflahæstu krókakarla á
landinu og árið í ár verður eflaust eng-
in undantekning því aö á rúmlega 20
ára sjómannsferli sínum segist Þorvald-
26 ÆGIR