Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Blaðsíða 5
Stefna HR hefur verið og er að þeir nemendur sem inngöngu fá í skólann standist þær
kröfur sem skólinn gerir til nemenda. ... Þá vil ég að gefnu tilefni undirstrika að síst
verða gerðar minni kröfur til nemenda en gerðar eru við aðra háskóla hér á landi.
Forseti deildarinnar kveðst síðar í viðtalinu ekki óttast mikið brottfall nem-
enda og segir þar um:
í mínum huga er hátt brottfall í háskóla mikill áfellisdómur sem kallar á gagnrýna
endurskoðun á kennslu og vinnubrögðum nemenda. Við sem störfum við lagadeild-
ina munum leggja okkur öll fram í þjónustu okkar við nemendur og ég er þess full-
viss að nemendur okkar munu leggja sig alla fram eins og nemendur við aðrar deildir
háskólans hafa gert.
Fram kemur í viðtalinu að skólagjöld á fyrstu önn verði 89.000 kr. Þá segir
deildarforsetinn enn í viðtalinu eftirfarandi:
Nám við lagadeild HR verður fullgilt laganám og óhætt að staðhæfa að þeir sem
ljúka meistaraprófi frá lagadeild HR munu hafa næga menntun til að gegna störfum
lögmanna og dómara.
Þessi yfirlýsing verður varla skilin öðruvísi en svo að stefnt sé að námi sem
standist námi í lagadeild Háskóla Islands snúning og sé jafngilt því. Þess vegna
skýtur nokkuð skökku við þegar deildarforsetinn telur nauðsynlegt að breyta
lögum um rétt lögfræðinga til þess að starfa sem lögmenn og dómarar. Það ætti
að vera óþarft sé mark takandi á yfirlýsingum sem frá lagadeild HR hafa komið.
Nýlega var frá því sagt í fjölmiðlum að þó nokkuð á annað hundrað manns
hefðu sótt um inngöngu í lagadeild HR og væntanlega sæktu fleiri. Samkvæmt
orðum deildarforsetans verður blíðlega tekið á móti þessum hópi, a.m.k. 75
þeirra sem í honum eru, og óþarft að óttast að margir nemendur heltist úr lest-
inni. Þessir nemendur verða tæpast felldir af sömu hörkunni og viðgengist hefur
í lagadeild Háskóla Islands. Réttmætt kann að vera að spyrja sem svo hvort þar
kunni að hafa einhver áhrif að nemendur verða að greiða drjúgan skilding, alla
vega á mælikvarða þeirra sjálfra, fyrir að fá að stunda nám í deildinni. Yfirleitt
tíðkast ekki að amast við þeim sem greiðir manni fé í viðskiptum. Það er greini-
lega ekki heldur tekið illa á móti þeim sem við deildina ætla að kenna því að
þar geta menn orðið prófessorar, eins og hendi sé veifað að því er virðist, og
þurfa ekki að fara eftir því langa og leiðinlega ferli sem þeir verða að gera sem
sækja um stöðu prófessors við lagadeild Háskóla Islands.
Það er vel skiljanlegt að sá sem vill ryðja sér til rúms, eins og lagadeild HR,
þurfi að auglýsa sig og kynna. Enn sem komið er verður að telja töluverðan
galla á kynningunni að í henni hefur hvergi komið fram, svo séð verði, hverjar
kröfur verða gerðar til nemenda, hvaða próf þeir þurfa að standast og hvemig,
enda þótt að nemendum sé eflaust gerð grein fyrir því í upphafi. Auglýs-
ingamar og viðtölin ein og sér gætu fengið menn til þess að trúa því að eftir
99