Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 10

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 10
það vel að þeim breytingum á þjóðfélaginu sem fylgdu vexti verzlunar og viðskipta. Keisari hins rómverska ríkis miðalda brást við þessu framtaki páfa með því að styðja kröfur sínar til lagasetningarvalds við lög Jústiníans keisara frá 6. öld e. Kr. Þeim rökum beittu síðan konungar hinna vaxandi þjóðríkja á 13. og 14. öld.5 Með þessu varð sú gagngera breyting að lögin urðu tæki valdhafa til að stjóma, en jafnframt losnaði um þau höft sem hin foma lagahefð hafði lagt á hendur valdsmanna. Bylting Gregors páfa VII. markar ekki einungis þáttaskil í viðhorfum til lagasetningar, heldur einnig upphaf nútíma ríkis, enda fylgdi á eftir skipulagt stjórnkerfi með stjómsýslustofnunum, sköttum og skyldum, föstum embættum o.s.frv. Síðan gengu veraldarhöfðingjar í fótspor kirkjunnar um skipulag ríkja sinna. Þannig stendur vagga nútíma ríkis innan vébanda kaþólsku miðalda- kirkjunnar. Þótt kirkjan yrði þannig sjálfstæð með eigið stjómkerfi héldust um langt skeið margvísleg tengsl milli hins andlega og veraldlega valds.6 En þrátt fyrir þetta gekk lagasetningarvaldið ekki til konunga og fursta einna, heldur var það einnig í talið höndum landslýðsins, raunar oddvita hans, eins og fyrmrn hafði verið, oftast í samvinnu beggja. Og enn mótaðist lagasetning að nokkru leyti af hinum fomu hugmyndum með því að löggjafar töldu sig vera að leiða í ljós gömul og góð lög, en ekki setja ný nema þá að óverulegu leyti og þá í anda þeirra og til umbóta á þeim.7 Þetta setti mark sitt á form laganna. Þau vom atviksbundin eða kasúísk. Þetta birtist glögglega í Grágás og einnig Jónsbók. 4. ATVIKSBUNDNAR LAGAREGLUR VERÐA ALMENNAR Atviksbundnar lagareglur sem lýstu ákveðinni og afmarkaðri atburðarás þróuðust smám saman í þá átt að vera almennar og óhlutbundnar og þá varð að grípa til þess að skilgreina og lýsa sem almennast hverju einu sem gerist í samskiptum manna. Nú varð eitt helzta einkenni lagareglna að leitazt var við að einfalda flókið ferli og færa fjölda valkosta í fáa. Þannig eru í almennum og óhlutbundnum reglum sett fram viðmið um háttsemi án þess að vísað sé til 5 Sjá nánar Sigurð Líndal: „Stjómskipunarhugmyndir og stjómarhættir til loka hámiðalda". Saga Islands III. Samin að tilhlutan Þjóðhátíðamefndar 1974 [...]. Hið íslenzka bókmenntafélag - Sögufélagið. Reykjavík 1978, bls. 4 o.áfr. Sami: „Lög og lagasetning í íslenzka þjóðveldinu". Skímir. Tímarit Hins íslenzka bókmenntafélags 158. ár (1984), bls. 121-58. 6 H. Krause: „Gesetzgebung". Handwörterbuch zur deutschen Rechtsgeschichte I, 1606-20. Harold J. Berman: Law and Revolution. The Formation of Westem Legal Tradition. [...]. Harvard University Press [...1999], bls. 18, 28, 85 o.áfr., 113 o.áfr. 535. Sigurður Líndal: „Early Democratic Traditions in the Nordic Countries". Nordic Democracy. [...]. Det Danske Selskab. Copenhagen 1981, bls. 22-25. 7 í bréfi Magnúsar lagabætis sem fylgdi Jónsbók er lögð áherzla á lagabætur en ekki lagasetning. Þar segir meðal annars: „Þér vitið, að hinir skilríkastu menn af Islandi hafa iðulega getið fyrir oss, að þér hafið spurt, að vér höfum hlut í átt að bæta nokkuð um flestar lögbækur í Noregs konungs ríki með hinna beztu manna ráði, og beðið oss, að yður bók [Jámsíða] skyldi eigi þeirra umbóta hlutlaus vera“. I samræmi við þetta vom breytingar og viðaukar við Jónsbók ekki kölluð nýmæli, heldur réttarbætur. 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.