Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Side 17
ingum um siðferði, jafnvel kurteisi, en verður ekki framfylgt á neinn raun- hæfan hátt.22 7. Þessi kreppa lagasetningarvaldsins er óhjákvæmilegur fylgifiskur lýðræðis og fjölveldis. Hvorutveggja fylgir málamiðlun milli stjórnmálaflokka og þrýstihópa, sem eru boðberar ólíkra hugmynda og hagsmuna. Þetta bitnar þá á orðalagi og öðrum ytra búningi laganna vegna þess að sett eru í lög mjög almennt orðuð ákvæði og vísireglur. Lögin fullnægja ekki þeim áskilnaði að vera skýr og afdráttarlaus. Með því vísar löggjafinn vandanum til dómstólanna. En hann getur einnig farið þá leið að framselja vald sitt til stjómsýslunnar með ríflegum reglugerðarheimildum eða látið þegnum þjóðfélagsins eftir nánari útfærslu með frávíkjanlegum ákvæðum. Þetta kann að vera heppilegt að vissu marki. En að lokum er dómstólum falið endanlegt ákvörðunarvald þegar ágreiningur verður. 8. Skráð lög verður að túlka og af því er gjaman ályktað, að með túlkun sé ekki verið að setja reglu, heldur ákvarða efni reglu sem þegar sé til. Þetta verður sífellt erfiðara eftir því sem löggjöfinni hnignar og svigrúm dóm- stóla til að setja reglu eykst. 8. TÚLKUN REGLU - SETNING REGLU Þegar því er haldið fram að dómstólar setji ekki reglur heldur „finni reglu“ er það túlkunin sem skiptir máli. Þegar rætt er um hvað felist í túlkun er margs að gæta. Öll túlkun er reist á gagnvirkni, sem svarar nokkum veginn til þess sem kallað er hermeník á erlendum málum. Þar er gert ráð fyrir að allt viðhorf manna til umhverfisins sé reist á túlkun og menn nálgist hvert viðfangsefni með tiltekinn forskilning að leiðarljósi sem móti túlkunina. Það sem túlka á, t.d. textinn, hefur síðan áhrif á forskilninginn og hann breytist. Þannig verði sífelld gagnvirkni milli túlkendanna og þess sem túlkað er. Forskilningur manna breytist við breyttar aðstæður og breyttan tíðaranda, þannig að textar öðlast nýtt líf með hverri kynslóð, ekki sízt þegar þeir verða gamlir, enda em aðstæður - og þar af leiðandi forskilningur - sfbreytilegar hvort heldur þær lúta að tækni, hagskipan, félagsskipan eða að stjómmálum.23 Ef viðfangsefnið er lagatextar má segja að með því sem kallað er túlkun sé í sífellu verið að móta nýjar reglur með breyttan forskilning að leiðarljósi þótt orðalag haldist óbreytt, en svigrúm túlkandans fer svo eftir því hversu skýr og afdráttarlaus texti er, hversu gamall hann er, hvort þar sé fjallað um viðfangsefni sem taka örum breytingum eða ekki. Þetta gerist á sviði stjómmála við endurskoðun laga og setningu nýrra þar sem meðal annars er lögð til grundvallar túlkun og skilningur á eldri lögum, venju og öðrum réttarheimildum. Einnig gerist þetta meðal þegnanna sem móta samskiptavenjur og ekki sízt fyrir tilstilli dómstólanna við uppkvaðningu dóma og úrskurða. Taka má fimm dæmi til nánari skýringar: 22 Sjá hér til dæmis lög nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga. 23 Riithers: Rechtstheorie, Rn. 983 o.áfr. 111
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.