Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 52

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 52
Ákvörðun 29/97. „Með vísan til 17. gr. samkeppnislaga beinir samkeppnisráð þeim fyrirmælum til Tryggingastofnunar ríkisins að ganga til samninga við tannsmíða- meistara sem sérhæfðir eru í smíði á lausum gervigómum, um lögboðnar endur- greiðslur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega og þá sem slysatryggðir eru samkvæmt almannatryggingalögum. á þeim grundvelli sem markaður er í almannatrygginga- lögum“. Þessi dæmi vitna um það hversu fjölbreytileg og hversu mismunandi fyrir- mæli samkeppnisráðs geta verið, allt eftir því hvað á við í einstökum málum. Þá er tímabært að freista þess að svara annarri spumingunni sem sett er fram hér að framan. Spurningin verður nánar sú hvort samkeppnisráð geti á grund- velli 2. mgr. 17. gr. gefið fyrirmæli um að fyrirtæki skuli skipt upp og hluti þess seldur vegna brota (og jafnvel endurtekinna brota) eða einfaldlega á þeirri forsendu að staða fyrirtækis sé svo sterk á markaði að þar séu aðstæður sem skaðlegar séu samkeppni. Svo spurt sé með öðru orðalagi; getur verið að í þessu ákvæði felist heimildir til handa samkeppnisráði til þess að endurskipuleggja markaðinn þannig að hann verði talinn í samræmi við markmið laganna, án tillits til þess hvort um tiltekin brot sé að ræða? Svo vill til að samkeppnisráð hefur sjálft að nokkru tekið afstöðu til þessara álitaefna. Er því eðlilegt að byrja á því lýsa þeirri afstöðu. Hugleiðingar um þetta er að finna í ákvörðun ráðsins nr. 21/1998 þar sem fjallað var um breiðband Landssíma Islands.31 I hluta II B 7 í ákvörðuninni ræðir ráðið um möguleg úrræði vegna sterkrar stöðu Landssímans á fjarskiptamarkaði, einkum breiðbands Landssímans. Af þeirri umfjöllun verður Ijós sú afstaða samkeppnis- yfirvalda að þau telja, án tillits til tiltekinna brota, stöðu Landssímans í raun ógna samkeppni og erfitt sé að samræma hana markmiðum samkeppnislaga. í ákvörðuninni segir m.a. orðrétt: Eins og áður sagði telur samkeppnisráð að þær aðstæður sem skapast hafa og eru að skapast á fjarskiptamarkaði geti haft skaðleg áhrif á samkeppni og stríði þar með gegn markmiði og tilgangi samkeppnislaga. Ljóst er að þau skaðlegu áhrif sem hér um ræðir eru alger yfirburðastaða Landssíma Islands á markaði fyrir sölu aðgangs að grunnfjarskiptavirkjum. I ákvörðun segir samkeppnisráð jafnframt að samkeppnislög hafi að geyma „óvenju skýrar heimildir“ til að grípa til aðgerða gegn röskun á samkeppni sem ekki stafar af tilteknum aðgerðum. Lítur samkeppnisráð svo á að í 17. gr. sé að finna heimildir til að grípa til hvers konar ráðstafana sem unnt sé að sýna fram á með rökum að séu nauðsynlegar til að tryggja virka samkeppni, nema skýr 31 Umræddur hluti ákvörðunarinnar varðar aðeins hugleiðingar samkeppnisráðs um möguleg úrræði síðar án þess að þær séu hluti af ákvörðun samkeppnisráðs um þau ágreiningsefni sem uppi voru í málinu. 146
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.