Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 70

Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 70
nr. 17/1996 er sett lögbundið þak á fjárhæð gatnagerðargjalda. Samkvæmt 3. mgr. laganna getur gatnagerðargjald, sem miðað er við rúmmál eða flatarmál byggingar, numið allt að 15% af heildarbyggingarkostnaði samsvarandi ein- ingar í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikn- ingum Hagstofu Islands á grundvelli laga nr. 42/1987 um vísitölu byggingar- kostnaðar. I 3. mgr. 5. gr. reglugerðar m. 543/1996 um gatnagerðargjald er tekið fram að hámark gatnagerðargjalds samkvæmt framansögðu gildi jafnt um einstaka byggingaráfanga eða húshluta og byggingar í heild. Þar sem vísitala byggingarkostnaðar tekur ekki til lóðarstærðar á sama hátt og til flatarmáls og rúmmáls húss er mælt svo fyrir að gatnagerðargjald, sem miðað er við stærð lóðar, skuli ekki vera hærra en væri það miðað við stærð byggingar samkvæmt gildandi aðal- eða deiliskipulagi. I athugasemdum við 3. gr. frumvarps þess, er varð að lögum nr. 17/1996, er ákvæðið skýrt svo að slfkt gjald megi þá ekki vera hærra en það gæti hæst orðið ef miðað væri við rúmmál og/eða flatarmál byggingar á lóðinni samkvæmt gildandi aðal- eða deiliskipu- lagi.8 I 2. mgr. 78. gr. stjómarskrárinnar, sbr. 16. gr. stjómarskipunarlaga nr. 97/1995, er tekið fram að tekjustofnar sveitarfélaga skuli ákveðnir með lögum, svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og hvemig þeir eru nýttir. í 4. mgr. 7. gr. sveitarstjómarlaga nr. 45/1998, með síðari breytingum, er tekið fram að sveitarfélög skuli hafa sjálfstæða tekjustofna og sjálfsforræði á gjaldskrá eigin fyrirtækja og stofnana til þess að mæta kostnaði við framkvæmd þeirra verkefna sem fyrirtækin og stofnanimar annast. I 2. mgr. 6. gr. laga nr. 17/1996 um gatnagerðargjald er tekið fram að sveitarstjóm skuli setja sérstaka gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald þar sem kveðið sé nánar á um álagningu gjaldsins o.fl. I athugasemdum við 6. gr. frumvarps þess, er varð að lögum nr. 17/1996, er tekið fram að þrátt fyrir að sett verði reglugerð sem taki til landsins alls verði að veita sveitarstjómum svigrúm til að kveða á um fjárhæð gatnagerðargjaldsins innan þess ramma sem settur sé í 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins, greiðsluskilmála og þess háttar sem eðlilegt sé að ákveðið verði með mismunandi hætti eftir aðstæðum. Sé það í samræmi við meginreglu 5. mgr. 6. gr. þágildandi sveitarstjómarlaga nr. 8/1986 um forræði sveitarfélaga á gjaldskrám eigin fyrirtækja og stofnana.9 Af framansögðu athuguðu verður ekki annað séð en að sveitarstjómir hafi frjálst mat um upphæð gatnagerðargjalds skv. lögum nr. 17/1996 svo lengi sem þess er gætt að gjöldin fari ekki upp fyrir lögbundið hámark þeirra skv. 3. mgr. 3. gr. laganna og að fjárhæð þeirra í gjaldskrá sé byggð á löglegum og málefna- legum sjónarmiðum. 8 Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 992. 9 Alþt. 1995-1996, A-deild, bls. 993. 164
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.