Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Page 84
Pöntun vöru á netinu og greiðsla með kreditkorti eru rafræn viðskipti, en
afhending vörunnar heyrir ekki undir tilskipunina.
4. INNRI MARKAÐS ÁKVÆÐIÐ
Ein meginregla tilskipunarinnar er svonefnt innri markaðs ákvæði, uppruna-
landsregla eða stundum nefnt „Evrópupassi“, sjá 3. gr. Efnislega felst helst í
þessu ákvæði að staðfesturéttur í einu ESB/EES rflci tryggir rétt til að veita
þjónustu í atvinnuskyni í hvaða ESB eða EES landi sem er. Hver þjónustuaðili
skal haga starfsemi sinni í samræmi við lög þess rrkis þar sem hann hefur
staðfestu. Staðfesturíki ber að hafa eftirlit með því að þjónustuaðilinn framfylgi
þeim reglum sem samræmdar eru með tilskipuninni.
Tilskipunin gildir aðeins um þjónustuaðila sem hafa staðfestu innan
ESB/EES ríkja. Hún gildir því ekki um aðila frá þriðju ríkjum. Þýðing þessa er
einkum sú að hvert aðildarríki markar sína eigin stefnu gagnvart þriðju ríkjum,
að vísu í samræmi við aðra alþjóðasáttmála sem það er aðili að.
Ákveða ber hvar sá sem veitir þjónustuna hefur staðfestu en samkvæmt
réttarframkvæmd Evrópudómstólsins er það sá staður þar sem rekin er virk
atvinnustarfsemi ótímabundið í fastri starfstöð. Mikilvægt er að gera greinar-
mun á staðnum sem það félag sem veitir þjónustu um vefsetur hefur staðfestu
(stundar atvinnurekstur sinn) og staðnum þar sem tæknibúnaðurinn á bak við
vefsíðu þess er. Síðamefndi staðurinn skiptir ekki máli í skilningi tilskipunar-
innar. I tilvikum þar sem þjónustuveitandi hefur staðfestu á fleiri en einum stað
er mikilvægt að ákveða hvaðan viðkomandi þjónusta er veitt.
5. UNDANÞÁGUR FRÁ INNRI MARKAÐS ÁKVÆÐINU,
AUMENNAR OG SÉRSTAKAR
I viðauka við tilskipunina er listi yfir almennar undanþágur frá innri markaðs
ákvæðinu. Um er að ræða réttarsvið sem þegar hefur verið sett löggjöf um í
ESB.
Dæmi um þetta eru ákvæði í tilskipunum um vátryggingafélög sem kveða á
um að leysa skuli úr ágreiningi á þeim stað sem tryggingaráhættan er bundin
við. Aftur á móti hefur enn ekki verið sett sérstök tilskipun um starfsemi
vátryggingamiðlara svo að viðskipti þeirra fara eftir þessari tilskipun eftir því
sem við á. í 2. mgr. 44. gr. tilskipunar um verðbréfasjóði (UCITS) eru sér-
ákvæði um auglýsingar. Þá eru sérákvæði í höfundaréttartilskipun og tilskipun
um hugverkarétt á sviði iðnaðar sem ganga framar þessari almennu tilskipun. I
tilskipun um rafeyrisstofnanir3 er gert ráð fyrir að rafeyrisstofnanir, sem gefa út
rafeyri í litlu lokuðu kerfi, geti fengið undanþágu frá ákvæðum tilskipunarinnar
en þá fá þau ekki svonefndan Evrópupassa og falla ekki undir tilskipunina um
3 Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/46/EB frá 18. september 2000 um stofnun og rekstur
rafeyrisstofnana og eftirlit með þeim.
178