Tímarit lögfræðinga - 01.07.2002, Síða 92
2. NÁM VIÐ LAGADEILD
Haustið 1999 var tekið upp einingakerfi við lagadeild og lýkur hefðbundnu
laganámi nú með kandidatsprófi/embættisprófi sem vegur 153 einingar. Stefnt er
að upptöku nýrrar námsskipunar við lagadeild haustið 2002 þannig að nemendur
ljúka fyrst 90 eininga BA-prófi í lögfræði og síðan 60 eininga kandidatsprófi,
sem verður jafngildi meistaraprófs og jafnframt embættispróf. Áfram er unnið
að undirbúningi meistara- og doktorsnáms í lögfræði á ensku við lagadeild.
Á haustmisseri 2000 var í fyrsta sinn boðið upp á diplómanám við lagadeild
fyrir aðstoðarfólk lögfræðinga. Þar er um að ræða 45 eininga nám sem byggist
á námskeiðum í lagadeild, viðskipta- og hagfræðideild, félagsvísindadeild og
heimspekideild og lýkur með diplómaprófi. 10 nemendur hófu nám þetta
haustið 2000 og 6 nemendur hófu námið haustið 2001. Allir diplómanem-
endumir stunda diplómanámið samhliða starfi og munu þeir fyrstu útskrifast í
júnímánuði 2002.
3. KJÖRNÁM VIÐ LAGADEILD
Við lagadeild er boðið upp á 10-12 íslenskar kjörgreinar (valnámskeið) á
hverju misseri, að nokkm mismunandi greinar frá ári til árs. Kjörgreinar þessar
eru orðnar um 50 talsins og er hver kjörgrein yfirleitt kennd annað hvort ár.
Nokkrar vinsælustu og aðsóknarmestu kjörgreinamar hafa þó verið kenndar
árlega. Stöðugt er unnið að skipulagningu nýrra kjörgreina sem hafa verið
kenndar á undanförnum misserum og verða kenndar á næstunni. Má þar nefna
námskeið á sviði fjármagnsmarkaðsréttar, almenns og sérstaks persónuréttar,
upplýsingatækni, umhverfisréttar, kvennaréttar, auðlindaréttar o.fl. Ennfremur
hefur þeim laganemum fjölgað talsvert á síðustu ámm sem nýta sér heimild til
að taka allt að 15 einingum við aðrar háskóladeildir sem hluta kjömáms þeirra
við lagadeild. Algengast er að laganemar stundi þannig nám við viðskipta- og
hagfræðideild, félagsvísindadeild og/eða heimspekideild Háskóla íslands.
3.1 Kjörgreinar við lagadeiid háskólaárið 2000-2001
Alþjóðlegar mannréttindareglur, Alþjóðlegur refsiréttur, Auðkennaréttur,
Evrópuréttur I, Evrópuréttur II, Fasteignakauparéttur, Félagaréttur I, Félaga-
réttur II (félaga- og kauphallarréttur), Fjáimuna- og efnahagsbrot, Fullnustu-
gerðir, Hlutverk dómara og lögmanna við meðferð einkamála og opinberra
mála, Höfundaréttur, Lögfræðileg skjalagerð (fyrir diplómanemendur), Of-
beldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar, Rekstrarhagfræði, Samkeppnisréttur,
Skuldaskilaréttur, Sveitarstjómarréttur, Umhverfisréttur, Veðréttur og ábyrgðir,
Verðbréfamarkaðsréttur og Verktaka- og útboðsréttur.
3.2 Kjörgreinar við lagadeild háskólaárið 2001-2002
Almennur viðskipta- og neytendaréttur, Alþjóðlegur einkamálaréttur, Alþjóð-
legur höfundaréttur, Bandarískt lagamál og réttarkerfi, Einkaleyfi og hönnunar-
186