Ægir - 01.04.1996, Blaðsíða 30
Nú í aprílmánuði lýkur breytingum á Farsæli GK 162, 1636, hjá
Ósey hf. í Hafnarfirði. Skipa- og Vélatækni í Keflavík hannaði
breytingarnar og hafði eftirlit með framkvæmd verksins. Eigandi
bátsins er Farsæll hf. o.fl. í Grindavík og framkvæmdastjóri er
Hafsteinn Þorgeirsson. Skipstjóri er Grétar Þorgeirsson, og yfir-
vélstjóri er Viðar Geirsson.
HELSTU BREYTINGAR
Skrokkur bátsins var lengdur um
4 m, 8 bandabil, og kemur lenging-
in sem stækkun á lestarrúmi. Ný lest-
arlúga kemur í lenginguna og á lúg-
una verður komið fyrir fiskmóttöku.
Vélsmiðjan Orri sá um stál- og plötu-
smíðina. Framan við lengingu eru
byggðar nýjar síður og hvalbakur og
stýrishús, með ljósa- og radarmastri,
ofan á hvalbakinn. í nýjum hvalbak
eru byggðar nýjar íbúðir sem er einn
6 manna klefi fremst og aftantil er
borðsalur og eldhús. Snyrtiklefi með
sturtu og salerni, ný stakkageymla
sem er einnig nýtt sem geymsla
vegna netabætinga. Innréttingar
annaöist Trésmiðjan Brim. Nýr og
stærri ferskvatnstankur kemur í bát-
inn. Þilfari bátsins var lift um 0,5 m.
Skutur bátsins, aftan við lenginu, er
sá sami og var í bátnum en vélar-
rúmsþil fært fram um 1 m, 2 banda-
bil. Við hækkun á þilfari stækkuðu
olíugeymar bátsins. Nýr vélarúms-
kappi var byggður og staðsetning
hans færð tii frá því sem áður var.
Rafkerfi bátsins var gjörbreytt. Allt
gamla 24 V jafnstraumsrafkerfið var
tekið úr bátnum og sett nýtt 3 fasa
220 V riðstraumskerfi. Tvær nýjar
Perkins ljósavélar, frá Marafli, með
28 KW rafal hvor. Nýjar rafmagns-
töflur frá Rafboöa hf. og allar lagnir
einnig endurnýjaðar. Stýrisvél er nú
rafdrifin, einnig sjódælur og nýr
vélarúmsblásari. Gamla olíukynta
Ferill skips
í september 1982 bættist í fiskiskipa-
flotann stálskip sem keypt var notað frá
Svíþjóð.
Skip þetta hét upphaflega Lovisa og er
smíðað árið 1977 hjá skipasmíðastöðinni
Grönhögens Sevets A/B í Dagerhamn í
Svíþjóð undir eftirliti hjá Sjöfartsverket. í
september árið 1982 er skipið keypt til
íslands af Þorgeiri Þórarinssyni o.fl. í
Grindavík og sama ár er lokið við lengingu
á skipinu um 3 m í Svíþjóð. Eftir að skipið
kom til landsins var settur í það ýmiss
búnaður, m.a. vindur og rafeindatæki. Skipið
hóf veiðar í febrúar 1983.
í febrúar 1989 eignast Brynjólfur hf. o.fl. í
Njarðvíkum skipið, en núverandi eigendur,
Farsæll hf. o.fl. i Grindavík, eignast það íjúlí
1990.
Árið 1984 var sett á bátinn togvindubún-
aðurfrá Sig. Sveinbjörnssyni. Árið 1989 var
skipt um aðalvél og sett ný Volvo Penta 373
hö. Árið 1993 var settur nýr spilbúnaður frá
Ósey hf. ásamt netvindu, einnig var sett
perustefni á bátinn árið 1993.
30 ÆGIR