Ægir - 01.08.1999, Side 13
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
inni í fiskinum á hverjum tíma en það
getur rokkað allt frá 6% til 30%. Mis-
munurinn er oft loðna eða síli sem
fiskurinn hefur étið og í raun út úr
korti að nota þá vigt sem grunn að
kvótanotkun til samræmis við slægð-
an fisk með haus, að ég tali nú ekki
um unninn fisk í umbúðum. En þetta
á ekki bara við litlu fyrirtækin heldur
þau stóru líka. Þau ættu að sækjast eft-
ir því að fá að nota afurðirnar sem
grunn að kvótanotkun og að geta
unnið sér þannig inn sína eigin nýt-
ingarstuðla rétt eins og fiskhúsin á
millidekkjum togaranna úti á sjó.
Má ekki fórna hagkvæmninni
fyrir óskilgreinda sátt
um sjávarútveginn
Pétur leggur mikla áherslu á að gott
útgerðar- og sjávarútvegsfyrirtæki
verði aldrei rekið nema samræmi sé
milli veiðiheimilda, skipastóls og
vinnslunnar, hvort sem hún er úti á
sjó eða í landi. Þá fyrst náist hámarks-
afrakstur og á hagnaðinn verði vissu-
lega að stefna. Hann segist á vissan
hátt óttast að svokölluð sátt um sjáv-
arútveginn verði keypt með minni
hagkvæmni greinarinnar.
„Við megum aldrei gleyma því að
sjávarútvegurinn er grunnatvinnu-
greinin en það er sjávarútveginum
auðvitað keppikefli að hér rísi upp
aðrar greinar, eins og t.d. tölvufræði
og erfðavísindi, sem skjóti stoðum
undir þjóðarbúið. í sjávarútveginum
erum við samt engan veginn komnir
að endimörkum og ómældir mögu-
leikar fyrir hendi, t.d. í fullvinnslu
sjávarafla og þróun á nýjum vörum.
Til þess að nýta þau tækifæri þá veitir
greininni ekkert af öllum þeim fjár-
munum sem hún getur mögulega
skapað og þangað vil ég sjá fjármun-
ina renna fremur en að þeir fari í að
skapa einhverja sátt sem erfitt er að
skilgreina hvar liggur," segir Pétur Haf-
steinn Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis hf.
Ein af stœrstu stundum í sögu Vísis hf. var þann 20. apríl síðastliðinn þegar forseti
íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson og forseti Lettlands, hr. Guntis Ulmanis, komu í
heimsókn í fyrirtœkið og kynntu sér starfsemina og framleiðslu á hágœða saltfiski. Hér
heilsa forsetamir feðgunum þremur í Vísi. Fjasrst er Pétur Hafsteinn Pálsson, Páll H.
Pálsson fyrir miðju og nœst á myndinni er Páll fóhann Pálsson að heilsa forseta fslands.
Viljum sitja við sama borð
og frystitogararnir
Pétur Hafsteinn segist hafa komið
sjónarmiðum útgerðaraðila og fisk-
verkenda á Suðurnesjum á framfæri
við stjórnmálamenn og almennt hafi
menn skilning á vandanum en greini-
lega sé lítill pólitískur vilji til að mæta
honum. Hann segir sömuleiðis erfitt
fyrir landvinnslufyrirtækin að sætta
sig við samkeppnina við sjófrysting-
una þar sem mikill munur sé á nýt-
ingu kvótans milli þessara aðila.
„Fiskvinnslufyrirtækin í landi ættu
að geta notað afurðirnar sínar sem
grunn að kvótanotkun, eins og frysti-
togararnir gera. í raun er landvinnsl-
unni gert skylt að framfylgja alltof
ströngum vinnureglum um ísprufur
sem eru kostnaðarsamar og beinlínis
valdar að verri umgengni um hráefnið
en nauðsynlegt er. Einnig má nefna að
skemmist fiskur úti á sjó eða nýting
dettur niður af einhverjum ástæðum
tímabundið, skerðir það ekki kvóta
vinnsluskipa en kemur beint í bakið á
landvinnslunni. Hér er ekki minnst á
nýtingarstuðlana sjálfa sem sjóvinnsl-
an fær að nota og er sér kapítuli. Mér
finnst þetta óþolandi mismunun sem
Samkeppnisstofnun ætti að skoða.
Tökum sem dæmi minnstu skipin og
litlu saltfiskfyrirtækin sem vinna að
mestu úr óslægðu hráefni. Þau eru sí-
fellt að kljást við það hversu mikið er
Það fór vel á með þeim Ólafi Ragnari og
Páli í Vísi, enda báðir Vestfirðingar að
uppruna og kunningjar afþeim slóðum.
ÆCÍiR 13