Ægir - 01.08.1999, Síða 14
Hjónin Páll H. Pálsson og Margrét
Sighvatsdóttir hafa lagt marga vinnu-
stundina í uppbyggingu Vísis hf. Þau segja
þá hugsun fjarri að ofmetnast þó fyrir-
tœkið vaxi og taki jafnvel þátt í rekstri
sjávarútvegsfyrirtœkja í fjarlœgum byggð-
arlögum. Lykilatríðið sé að eiga samhenta
fjöiskyldu að baki rekstrinum, byggja á því
sem Vísis-fjölskyldan kunni best og reyna
að láta gott afrekstrinum leiða.
M'aðurinn á bak við uppbyggingu
Vísis hf. í Grindavík er Páll H.
Pálsson. Hann stofnaði fyrirtœkið á
sínum tíma ásamt tveimur öðrum og
keypti síðar meðeigendurna út úr
fyrirtœkinu og hefur rekið það ásamt
fjölskyldu sinni frá árinu 1989. Páll
hefur lifað títnana tvenna í
sjávarútveginum, verið sjálfur
skipstjóri og fiskverkandi og byggt
upp myndarlegt sjávarútvegsfyrirtœki
þrátt fyrir að hafa ekki haft að baki
sér stóra sjóði að sœkja í, nema þá
helst dugnaðinn og vinnusemina sem
einkennir alla fjölskylduna. Kona
Páls er Margrét Sighvatsdóttir og hún
liefur verið virkur þátttakandi í öllu
starfinu ígegnum árin, enda varla
hœgt að komast hjá þvíþar sem þau
hjón, ásamt börnum, bjuggu í
verbúðinni yfir fiskverkun Vísis
fyrstu tvö árin í Grindavík, enda allir
tiltœkir aurar notaðir til að byggja
fyrirtœkið upp.
Útgerð og
fiskvinnsla eru ekki
hugsjón heldur skemmtun
- segja hjónin PállH. Pálsson og Margrét Sighvatsdóttir, aðaleigendur Vísis hf.
Páll er Þingeyringur að uppruna og
flutti þaðan til Keflavíkur árið 1956.
Áður en til Keflavíkur kom hafði Páll
gert út bát með bróður sínum og
mágum sínum tveimur vestur á Þing-
eyri og fyrirséð var að þeir þyrftu á að
halda aðstöðu til saltfiskverkunar á
Þingeyri ef reksturinn ætti að bera sig.
Á þeim tíma sýndi sig að útgerð gat
ekki borið sig ein og sér heldur þurftu
bátaútgerðirnar einnig að hafa fisk-
verkun og ná þannig meiru út úr fisk-
inum. Aðstaðan á Þingeyri fékkst ekki
og því fór svo að Páll flutti suður til
Keflavíkur og Suðurnesin hafa fóstrað
fjölskyldu hans síðan.
„Ég byrjaði fyrst sem stýrimaður og
síðan skipstjóri hjá Keflavík hf. og síð-
14 M3m
jóliann Ólafur Halldórsson