Ægir - 01.08.1999, Page 46
HEVTIHGUR
vnwj
Vélarafl fiskiskipa
skoðað
Að framfylgja lögum veldur
stundum álíka vanda og þeim sem
leysa átti með setningu þeirra. Eng-
inn veit hvort svo muni fara um
áætlanir bresku ríkisstjórnarinnar að
framfylgja út í ystu æsar lögum um
skráð vélarafl fiskiskipa og burðar-
getu en vissulega eru ýmis alvarleg
teikn á lofti um áhrif þess á atvinnu-
greinina.
Árið 1997 tilkynnti Evrópuráðið
að það myndi beita sér fyrir því að
fylgst yrði nákvæmlega með hvernig
bandalagsríkin framfylgdu áður-
nefndum lögum. Vitað er að rnörg
fiskiskip eru skráð aflminni en þau
eru og hafa því meiri veiðigetu en
skráning gefur til kynna. Það skekk-
ir útreikninga sem fiskveiðistefna
ESB er byggð á.
Nýja kerfið tók gildi 1. júlí sl.
Leyfilegt er þó að breyta skráningu í
samræmi við gildandi lög en leggja
verður fram vottorð um rétta skrán-
ingu frá framleiðanda vélar skips
eða öðrum viðurkenndum aðila þar
sem nákvæm grein er gerð fyrir öll-
um breytingum.
Um áramótin 2000 hefst svo eftir-
litið sem yfirmenn strandgæslunnar
bresku munu annast. Peir hafa leyfi
til að fara um borð í skip og bera
skráð vélarafl saman við skráningar-
skírteini. Reynist skráð vélarafl
meira en skráningarskírteini sýnir er
skipið umsvifalaust svipt veiðileyfi
og eigandi þess sektaður.
(World Fishing)
Nýtt jyrirtœki með sameimngu Slippstöðvarinnar
og Stálsmiðjunnar:
Efling starfseminnar bæði
í Reykjavík og á Akureyri
Méð samruna Slippstöðvarinnar
hf. á Akureyri og Stálsmiðjunn-
ar hf. í Reykjavík verður til stœrsta
málmiðnaðarfyrirtœki landsins. Mið-
að er við að samruninn eigi sér stað
frá og með 1. september nœstkom-
andi og verður nýja félagið í 54% eigu
þeirra sem stóðu að Stálsmiðjunni hf.
áður en eigendur Slippstöðvarinnar
hf. munu eiga 46% í nýja félaginu.
Stærsti einstaki hluthafinn í hinu
nýja málmiðnaðarfyrirtæki verður
Slippfélagið í Reykjavík með um 30%
eignarhlut en að félaginu standa auk
þess Málning hf., Marel hf., Burðarás
hf. og Olís hf. sem helstu hluthafar.
Nærri 280 starfsmenn munu starfa
hjá sameinuðu félagi, 140 á hvorri
starfstöð. Ekki eru fyrirhugaðar upp-
sagnir vegna samrunans en forsvars-
menn fyrirtækjanna telja að hægt sé
með samrunanum að efla starfsemina
jafnt á Akureyri, sem í Reykjavík en
samanlögð velta fyrirtækjanna tveggja
nam í fyrra um 1,6 milljörðum króna.
Stálsmiðjan hf., sem stofnuð var
árið 1938, er skráð á Vaxtarlista Verð-
Núverandi framkvœmdastjórar Stálsmiðj-
unnar hf. og Slippstöðvarinnar hf., þeir
Ágúst Einarsson og Ingi Bjömsson munu
starfa áfram hjá nýju málmiðnaðarfyrir-
tceki en nýr forstjóri verður ráðinn yfir
félagið.
bréfaþings íslands hf. og eru hluthafar
félagsins 135. Hið sameinaða félag
verður áfram skráð á Vaxtarlistann.
Slippstöðin hf. var stofnuð árið
1952 og hefur frá upphafi verið á með-
al leiðandi iðnfyrirtækja á Akureyri.
Slippstöðin hf. hefur sérhæft sig í við-
gerðum og viðhaldi á skipum ásamt
smíði á fisvinnslubúnaði úr ryðfríu
stáli. Þá hefur félagið lagt áherslu á
skrúfuviðgerðir skipa.
46 AGIR