Ægir - 01.05.2000, Page 19
NÝTT HAFRANNSÓKNASKIP
Skipasýn. Að undangengnu útboði var
samið við ASMAR skipasmíðastöðina í
Chile um smíði á skipinu í byrjun árs
1998. Smíðasamningurinn hljóðaði upp
á 1200 milljónir. Að auki bættust við
kaup á vélbúnaði og ýmsum sérútbúnaði
frá innlendum og erlendum framleið-
endum.
Alls nemur byggingakostnaður skips-
ins um 1650 milljónum króna. Smíðin
er að mestu fjármögnuð úr Þróunarsjóði
sjávarútvegsins, um 1350 milljónir, en
einnig kemur til fé úr byggingarsjóði
hafrannsóknaskips, 300 milljónir, sem
fékkst við sölu r/s Hafþórs á sínum tíma.
Skipinu var hleypt af stokkunum í apríl
1999- Ingibjörg Rafnar, eiginkona Þor-
steins Pálssonar, þáverandi sjávarútvegs-
ráðherra, gaf skipinu nafnið Arni Frið-
riksson RE 200. Árni var fyrsti forstöðu-
maður Fiskideildar Atvinnudeildar Há-
skólans sem síðar varð Hafrannsókna-
stofnunin. Smíði skipsins lauk um miðj-
an apríl 2000 og hélt það af stað heim til
Islands 20. apríl s.l. Skipið var því tæp-
ar fjórar vikur á heimsiglingu.
Hið nýja hafrannsóknaskip, Arni Frið-
riksson RE 200, er 69-90 m að lengd og
14 m á breidd. Skipið er 2.233 brúttó-
rúmlestir og 670 nettótonn. Skipið er
með þrem heilum þilförum og bakkaþil-
fari. I skipinu eru íbúðir fyrir 33. Tog-
Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, afhendir Jóhanni Siguijónssyni, forstjóra
Hafrannsóknarstofnunarinnar, hið nýja og glæsilega skip. Mynd: Sverrir Jónsson
Heppni að lenda í brælu
Það er ekki algengt að skipstjórar
þakki fyrir að lenda í illviðri, en Guð-
mundur Bjarnason, skipstjórí á Árna
Friðrikssyni, segir það hafa verið mik-
ið lán að Lenda i brælu á lokakafla
heimferðarinnar.
„Fyrir vikið get ég fuliyrt að Árni Frió-
riksson er afar gott sjóskip. Vió lentum í
9 vindstigum og skipið svaraði því afar
vel, þannig að ég er fuLlviss um að þaó
á eftir aó standa sig virkilega vel í mis-
jöfnum verðrum á íslandsmióum."
Guðmundur er brúnn og sæUegur eftir
dvöLina ytra en feginn því aó vera kom-
inn heim, enda búinn að vera lengi ytra.
Þann 18. febrúar héLt hann tiL ChiLe tiL
að fylgjast með Lokafrágangi skipsins og
7.400 míLna heimsigLing yfir úthöfin
þrjú hófst 20. apríL og Lauk í Reykjavik-
urhöfn kL. 16 þann 18. maí.
Þaó fór vel um áhöfnina á heimleið-
inni, enda aLlttil alLs um borð. GLæsiLeg-
ir og rúmgóóir einkakLefar fyrir hvern og
einn, sóLbekkir, líkamsræktarsalur og
hvað eina. SjáLf sigLingin var tíóindaLít-
il og ekkert um óvænt ævintýri, „sem
betur fer," segir Guðmundur, „þvi ævin-
týrum fyLgir aLLtaf eitthvað vesen. Þó
get ég nefnt aó fyrsti fiskurinn kom um
boró á heimleióinni, flugfiskur sem
„nauðLenti" á dekkinu hjá okkur. Hann
er nú geymdur í frysti og bíður þess aó
vera rannsakaður af strákunum hjá Hafró
eða kannski Látum við bara stoppa hann
upp."
Guðmundur Bjarnason, skipstjóri, ánægður með
skipið og að vera Loks kominn heim. „Þetta er
skip sem á eftir að standa sig veL á
ísLandsmiðum." Mynd: Sverrir Jónsson