Ægir - 01.05.2000, Side 28
SJÓMANNSLÍF
Hríngferð um miðin
-Ægir slær á þráðinn til sjómanna
Það er jafnan fjör á miðunum við íslandsstrendur og þegar sól hækkar á lofti, lyftist brún sjómanna,
eins og annarra landsmanna. Ægir sló á þráðinn til fjögurra skipstjóra, forvitnaðist um aflabrögð, sjó-
mannadaginn og ýmislegt annað bar á góma.
Langa og lundi
- Ólafur Guðjónsson, skipstjóri
á Gæfu VE-11
- Jœja, hvar eruð þiö ad fiska í dag?
„Við erum nú bara hér sunnan við Eyjarnar, ætli við séum ekki
einhverjar sex ril sjómílur hér austan við Surtinn. Hér erum við
með löngunet og hafa bara verið ágæt aflabrögð að undanförnu.
I gær fengum við sex tonn af löngu og um tvö ronn af öðrum
afla, en erum í dag búnir að fá tvö og hálft til þrjú tonn af löngu
og eigum eftir að vitja um nokkur net. Annars vill maður alltaf
meira, eins og aðrir veiðimenn. Veturinn var samt ágætur og við
höfum þokkalegan kvóta, um hundrað tonn af þorski og svipað-
ar heimildir í öðru.“
- HvaS er þaS sem ber annars helst á góma hjá Eyjasjómönnum í dag?
„Það eru nú helst aflabrögðin. Lítið hefur verið að hafa af þorski,
en þeim mun meira er auðvitað af smáýsu, sem er vissulega
gæfuvottur. En fyrir vikið geta trollararnir náttúrlega hvergi ver-
ið. En þetta með þorskinn er vissuiega það sem fram kom í tog-
ararallinu sem sagt var frá um daginn en ég held þó að bæði það
og netarallið séu alltof hátt metið f veiðiráðgjöfinni - og ég hef
oft verið að röfla um þetta við fiskifræðinganna. Sjálfur er ég bú-
inn að vera á sjó héðan frá Eyjum frá því um 1970 og í til dæm-
is netarallinu þá miðast þetta alltaf við að menn séu að sækja á
sama blettinn. Það er eins og ekki sé gert ráð fyrir því að menn
færi sig ekki á milli veiðislóða. Eins getur miklu munað hvort
netin eru eingirni eða fjölgirni, jafnvel svo munar tugum tonna
á bát. Það er því afar margt sem menn verða að taka inn í þetta
dæmi.“
- Hvad xltiS þiö aS vera lengi í löngunni?
„Ætli við verðum ekki fram að sjómannadegi. Við erum í þessu
þann tíma sem hún er að hrygna. En síðan bindur maður bátinn
við bryggju eitthvað í sumar og fer í lundann í Ystakletti, en
veiðitímabilið byrjar þann 1. júlí.“
Búið að drepa
veiðimannseðlið
- Ólafur Einarsson skipstjóri
á Ásbirni RE-50
- Er þaS á Ásbirni RE? Hvar erudþiS staddir og hvernig eru aflbrögS?
„Við erum hér suður í Skerjadýpi, svona 70 sjómílur suðvestur af
Reykjanesinu. Hér erum við eitthvað að rembast í karfa, en það
er fremur lítið að hafa, en þannig vilja aflabrögð í maí reyndar oft
verða. Þetta er rólegur mánuður, en það verður víst að róa - eitt-
hvað verður vinnslan í landi að hafa. Nei, þetta eru ekki langir
túrar hjá okkar, oft þetta vika til tfu dagar.“
- HvaS eru menn um borS helst aS skrafa um þessa dagana?
„Ætli það séu ekki kjarasamningarnir en það virðist ganga afar
hægt þessa dagana að semja. I rauninni nákvæmlega ekki neitt.
Það stefnir allt í verkföll, en þau verða þá ekki fyrr en í haust -
en fyrst þá hafa þau einhverja þýðingu þegar nýtt kvótaár er haf-
ið. Vilji útgerðarmanna til þess að ganga til samninga við okkur
er annars afar lítill, enda kannski skiljanlegt. Þessi aðall hefur allt
í hendi sér og veit að vilji hans verður. Þeir fá stjórnvöld til þess
að setja lög á verkfall okkar, sé þess óskað.“
- Jeeja, þaS styttist í sjómannadaginn. Hvert er gildi hans í þinum
huga?
„Fyrst og fremst hefur þessi dagur táknrænt gildi, en á líka að
vera til þess að minna á okkur sjómenn. Við erum í raun hverf-
andi stétt. Þú sérð til dæmis hver aðsóknin er orðin að sjómanna-
skólum, hún er söm og engin. Og enginn talar lengur um hetj-
ur hafsins. Sannleikurinn er sá að búið er að drepa niður allt
veiðimannseðli í þessari þjóð, og þar er um að kenna þessu bless-
aða kvótakerfi okkar. Þeir sem eitthvað geta aflað fá ekki að njóta
sín - en meðalmennirnir njóta sín.“