Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Blaðsíða 6
4
vildu undir meistarapróf, fyrst að ljúka kandidatsprófi. Ný
lög, nr. 11/1947, hafa verið sett um tilraunastöð háskólans
í meinafræði, sem nú er verið að koma á fót á Keldum í Mos-
fellssveit. Þá hefir lögunum nr. 44/ 1941 um tannlæknakennslu
við háskólann verið breytt með 1. nr. 40/1947, og er aðalefni
breytinganna það, að þess verður ekki krafizt framvegis, að
nemendur þeir, sem ætla sér að stunda nám í tannlækningum,
hafi lokið miðhlutaprófi í læknisfræði, áður en þeir hefja
tannlæknanám sitt. Reynslan leiddi það í ljós, að flestir þeirra,
er svo langt voru komnir í læknanáminu, kusu fremur að
halda áfram og Ijúka fullnaðarprófi en að hverfa að námi í
tannlækningum.
Loks er þess að geta, að frumvarp milliþinganefndarinnar
í skólamálum til laga um menntun kennara, er ég gat um í
ræðu minni við þetta tækifæri í fyrra, hefir nú hlotið laga-
gildi, 1. nr. 16/1947. 1 þeim er lögskipað, að komið skuli á
fót kennslustofnun í uppeldisvísindum hér við háskólann. Verð-
ur sú stofnun væntanlega upphaf að sérstakri kennaradeild,
en nokkurn undirbúning mun þurfa, áður en hún geti tekið
fullkomlega til starfa. Hins vegar er nú bráð þörf á að koma
sem allra fyrst upp nokkurri kennslu í uppeldisvísindum. I
hinum nýju lögum um gagnfræðanám og um menntaskóla
eru stúdentar og háskólakandídatar útilokaðir frá því að
komast í fasta stöðu við skóla gagnfræðastigsins eða mennta-
skólana, hafi þeir ekki stundað nám í uppeldis- og kennslu-
fræðum. Tekur þetta einnig til þeirra, sem prófi höfðu lokið,
áður en lög þessi gengu í gildi, en flestir þeirra hafa stundað
þetta nám, þótt margir hafi þeir starfað árum saman sem
tímakennarar við skóla þessa með góðum árangri. Úr þessu
hefur nú verið bætt að nokkru með bráðabirgðalögum, þannig
að skilyrði þetta tekur aðeins til þeirra, er ljúka prófi eftir
1. janúar 1949, en vegna framtíðarinnar verður nú sem allra
fyrst að efna til kennslu í þessum fræðum hér við háskólann,
er þeir stúdentar geti sótt, er hugsa sér að verða kennarar,
og með því orðið hlutgengir í kennarastöður.
Allmiklar breytingar hafa orðið á skipun kennaraliðs há-