Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Blaðsíða 113
111
fyrsta tíma nýs útvarpsþáttar, sem kallast „Frá skólunum." Var tek-
ið það ráð, að hafa þáttinn í fundarformi, og kom þar fram einn mað-
ur frá hverju félagi, sem fulltrúa á í stúdentaráði.
Um fund þennan spunnust allmiklar deilur.
Hátíðahöld.
1. Fyrsti desember. Að vanda varð eitt fyrsta verkefni stúdenta-
ráðs að annast undirbúning hátíðahaldanna 1. desember og sjá
um þau. Var undirbúningur allur hinn friðsamlegasti, og urðu að
þessu sinni engar deilur um tilhögun né framkvæmd hátíðahaldanna,
og þóttu þau takast mjög vel.
Fjölmenn skrúðganga var farin frá háskólanum að Alþingishús-
inu, en prófessor Ásmundur Guðmundsson flutti ræðu af svölum
hússins. Var síðan gengið í kirkju og messu hlýtt. Sr. Jóhann Hann-
esson flutti ræðu, en sr. Magnús Runólfsson þjónaði fyrir altari.
Kristilegt stúdentafélag annaðist messuna f. h. stúdentaráðs. En nú
var endanlega ákveðið, að messa skyldi vera fastur liður í hátíða-
höldum stúdenta þennan dag, og félögunum tveim innan guðfræði-
deildar Háskólans falið að annnast þennan lið þeirra sitt árið hvort.
Þá var hátíðasamkoma í hátíðasal háskólans og hófst kl. 4. Þar
komu fram þekktir hljómlistarmenn og konur og prófessorarnir
Sigurður Nordal og Guðmundur Thoroddsen fluttu ræður. Sú ný-
breytni var tekin upp, að bjóða ýmsum embættismönnum og full-
trúum erlendra ríkja hér á landi í hátíðasalinn.
Um kvöldið var hóf að Hótel Borg. Þar flutti dr. Sigurður Þor-
arinsson ræðu, auk þess var þar upplestur og einsöngur, loks var
dans stiginn, og skemmtu menn sér hið bezta.
Hátíðahöldunum var öllum útvarpað, nema frá hófinu að Hótel
Borg, en þar var ræða dr. Sigurðar tekin á plötu og henni útvarp-
að í útvarpstíma Stúdentafélags Reykjavíkur.
Stúdentablaðið kom út þennan dag, og var það og merki dagsins
selt á götunum. Af blaðinu varð ágóði, aldrei slíku vant, og á rit-
nefnd blaðsins sérstakar þakkir skyldar fyrir dugnað sinn, en for-
maður hennar var Guðlaugur Þorvaldsson, stud. oecon. Að öðru leyti
varð fjárhagsafkoma dagsins einnig með albezta móti.
2. Áramótadansleikur. Á gamlárskvöld var að venju haldinn dans-
leikur í anddyri háskólans, og sá stúdentaráð að öllu leyti um und-
irbúning. Fjölmenni var og skemmtu menn sér hið bezta.
Prófessor Jón Steffensen flutti áramótaræðuna.
Með bréfi dags. 17. sept. 1948 tilkynnti háskólaráð stúdentaráði,
að anddyri háskólans yrði ekki lánað til dansleiks framvegis, og
varð því eigi hnikað, þrátt fyrir tilraunir stúdentaráðs í þá átt, en