Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Blaðsíða 12
10
gjaldeyrismálum hefir tafið svo byggingu íþróttahússins, er
vér höfum í smíðum, að það er ekki tilbúið til notkunar enn.
Er af því sömu sögu að segja og líklega má segja af flestum
húsum, sem nú eru í smíðum hér í bæ, að það er orðið langt
á eftir áætlun hvað tímann snertir og komið langt fram úr
áætlun hvað kostnað snertir.
Skipti háskólans við erlendar menntastofnanir og erlenda
vísindamenn eru nú aftur hafin, en þau sambönd rofnuðu að
mestu leyti á ófriðarárunum. Þegar Snorranefndin norska og
föruneyti hennar voru hér á ferð í sumar, sýndi Óslóarháskóli
Háskóla Islands þá sæmd að fela fulltrúa sínum, prófessor
Francis Bull, að flytja háskólanum kveðju sína. Próf. Bull
flutti kveðju þessa á samkomu, sem haldin var hér í hátíða-
salnum 21. júlí. Var þar margt hinna norsku gesta viðstatt,
m. a. Ólafur krónprins, ríkisarfi Noregs.
Háskólinn hefur sent fulltrúa á tvær hátíðir erlendra há-
skóla, er honum hafði verið boðið til. Var önnur 200 ára af-
mæli Princetonháskóla, og var prófessor Níels Dungal fulltrúi
vor við það tækifæri. Hitt var hátíð, er háskólinn í Lundi
efndi til á aldar ártíðardegi skáldsins Esaiasar Tegners. Próf.
Jón Helgason í Kaupmannahöfn sótti þá samkomu af hálfu
Háskóla Islands.
Það eru einkum tvö mál, sem vér höfum borið fyrir brjósti
í því, sem nefna mætti utanríkismál háskólans, að efna hér
til sumarnámskeiðs fyrir erlenda stúdenta og að geta boðið
merkum erlendum vísindamönnum hingað til fyrirlestrahalds.
Ég get þess með þökkum, að Alþingi veitir háskólanum fé til
þessa hvorstveggja á fjárlögum yfirstandandi árs.
Vér boðuðum því til sumarnámskeiðs fyrir stúdenta frá
Norðurlöndum, er stunda norræn fræði, og skyldi það haldið
í júní og júlímánuðum. Vegna þess, hve afgreiðsla fjárlaganna
drógst, var ekki hægt að boða námskeiðið fyr en á útmán-
uðum. Mun bæði það og dýrtíðin hér á landi hafa dregið úr
þátttökunni, en þó var hún nokkur frá Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð, en það, sem reið baggamuninn, var, að þátttakendur
gátu ekki fengið far hingað til lands, öllu farrými í hinum