Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1948, Page 85
83
Kl. 2 e. h. söfnuðust menn saman í hátíðasal háskólans. Þar
fluttu ræður rektor háskólans og forseti guðfræðisdeildar,
Tómas skáld Guðmundsson flutti hátíðarljóð, er hann hafði
ort, og dómkirkjukórinn söng lofsöng Beethovens og þjóðsöng-
inn.
Skömmu síðar fór fram hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Gengu prestar hempuklæddir í skrúðgöngu til kirkju, nálega
70. Prófessor Ásmundur Guðmundsson og dr. Bjarni Jónsson
vígslubiskup þjónuðu fyrir altari, en biskupinn, dr. Sigurgeir
Sigurðsson, prédikaði. Þar var meðal annars sungið fyrsta er-
indið úr hátíðarljóðum Tómasar Guðmundssonar, en Björgvin
Guðmundsson hafði samið við það lag.
Um kvöldið var samsæti í Hótel Borg, er menntamálaráð-
herra og rektor háskólans buðu til. Þar fluttu ræður Eysteinn
Jónsson menntamálaráðherra, séra Kristinn Daníelsson, dr.
Sigurgeir Sigurðsson biskup, séra Valdimar Eylands, prófessor
Ásmundur Guðmundsson og próf. dr. Ólafur Lárusson.
Prestafélag Islands lét semja minningarrit, er út kom þennan
dag, en var gefið út á kostnað h.f. Leifturs: lslenzkir guöfræð-
ingar 184 7—I. Saga Prestaskólans og Guöfræðisdeildar
háskólans 18lf—19lf eftir séra Benjamín Kristjánsson. II.
Kandídatatal 181/.7—1947 eftir séra Björn Magnússon dósent.
Heillaskeyti og árnaðaróskir bárust skólanum víðs vegar.
Prestar gáfu fé í útgáfusjóð handa Prestafélagi Islands. Próf.
Guðbrandur Jónsson og frú hans gáfu kapellu háskólans for-
kunnarfagra hökul.
Ræður þær, sem fluttar voru við minningarathafnimar,
minningarguðsþjónustuna og flestar ræðumar í samsætinu, svo
og hátíðarljóð Tómasar skálds Guðmundssonar o. fl., eru prent-
aðar í Kirkjuritinu 1947, bls. 293—353.