Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Qupperneq 11
9
Á þessu ári hefur Þjóðleikhús Islendinga tekið til starfa, og
verður þar stofnaður leikskóli, þar sem áherzla verður lögð á
að vanda framburð íslenzks máls og gæta fegurðar tungunn-
ar. Indriði Einarsson, forvígismaður þjóðleikhússmálsins, sagði
eitt sinn, að háskólinn og leikhúsið ættu að verða efstu tind-
arnir í menningarlífi Islendinga. Væri óskandi, að svo reyndist.
En til þess þarf á báðum stöðum árvakra starfsmenn, er finni
til þeirrar skyldu, er hvíhr á herðum þeirra, óeigingjarna, starfs-
fúsa menn og með auðmjúkt hugarfar. Vér lútum allir lögum
þjóðarinnar, en einnig hinum eilífu lögum tilverunnar, og því
betur sem vér gerum oss þetta Ijóst, því betur mun oss farn-
ast. Yfir dyrum hins fræga lagaskóla í Harvard er letrað:
Non sub homine, sed sub lege et deo. Mættum vér allir, bæði
kennarar og stúdentar, geyma þessi orð í huga vorum.
Þá flutti próf. dr. med. Jóhann Sœmundsson erindi um ýms-
ar nýjungar í lyflæknisfræöi.
Að því loknu ávarpaði rektor hina nýskráðu stúdenta og bauð
þá velkomna til náms.
2. Minningarhátíð á 400. ártíð Jóns Arasonar.
Á 400. ártíð Jóns biskups Arasonar, 7. nóv. 1950, var hald-
in minningarathöfn í hátíðasalnum. í fjarveru rektors stýrði
vararektor, próf. dr. Einar Ól. Sveinsson, athöfninni og flutti
ávarpsorð á þessa leið:
Fyrir réttum 400 árum, 7. nóvember 1550, voru Jón Arason,
biskup á Hólum, og synir hans, Ari lögmaður og Björn pró-
fastur, leiddir á höggstokkinn í Skálholti og teknir af lífi.
Þeir höfðu verið sigraðir og teknir til fanga og verið í haldi
rúman mánuð, en svo mikil ógn stóð sigurvegurunum af föng-
um sínum, að þeir þorðu ekki að hafa þá lengur í haldi sam-
kvæmt dómi þeim. er þeir höfðu dæmt, og tóku þá af lífi
án dóms og laga.
2