Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Blaðsíða 75
73
m. 1 réttarfari: Hvað er lögbann og hvenær er heimilt að
beita því?
IV. Raunhœft verkefni:
Árni Ámason, stýrimaður á e/s. Hrafni, var mikið kvennagull
og ekki við eina f jölina felldur í kvennamálum. Þar kom þó, að þann
10. maí 1950 kvæntist hann kunningjastúlku sinni, Guðrúnu Jóns-
dóttur, og settu þau bú saman. Með þeim var venjulegt fjárfélag.
E/s. Hrafn var í föstum áætlunarferðum milli Reykjavíkur og Hull.
Eftir giftinguna var Ámi hálfbreyzkur eins og fyrr, einkum erlend-
is, og í Hull bjó hann beinlínis með enskri stúlku — Luly Brown —,
þegar hann var þar, enda hafði hann gert það áður og á sínum
tíma heitið henni eiginorði. Ekkert lét hann hana vita um gift-
ingu sína.
Leið nú nokkur tími og gekk allt vel hér heima fyrir. En í Hull
fór ungfrú Brown að ganga eftir efndum á giftingarloforðunum.
Kenndi Ámi ýmsu um, til þess að afsaka dráttinn. Loks þraut þó
þolinmæði ungfrú Brown og krafðist hún, að Ámi efndi loforð sín.
Kom þá hið sanna upp, og líkaði henni stórilla.
Ekki leið heldur á löngu, þar til að það bar við eitt sinn, er Ámi
var heima, að þar birtist Luly Brown. Segir ekki af þeim fundi
annað en það, að þama varð hið mesta hark og illindi. Við það
varð hundur, er þau Guðrún og Ámi áttu, svo æfur, að hann rauk
1 ungfrú Brown og reif pils hennar og beit hana í fótinn, þannig
að sokkar hennar eyðilögðust og hún hlaut sár, er talsvert blæddi úr.
Sárið var þó ekki meira en það, að heilt var eftir 10 daga, en ör
varð eftir, ekki augljóst, en þó vel sjáanlegt gegnum silkisokk, ca.
3 cm. á lengd og 0,5 á breidd.
Himdurinn var ekki þekktur að því að bíta, en hafði til að glefsa
í menn, ef hátt var haft, eða ofsalegt atferli. Guðrún lét sér hátta-
lag hundsins vel líka, en Ámi hastaði á hann. Hundurinn sefaðist
þó lítið, og flúðu þau Ámi og ungfrú Brown af vettvangi.
Hófust nú málaferli af hálfu þeirra kvennanna beggja. Krafðist
frú Guðrún skilnaðar frá Áma þegar í stað og fékk hann. En img-
frú Brown krafðist bóta fyrir röskun á stöðu sinni og högum —
hún var skrifstofustúlka — svo og bóta fyrir ráðspjöll — hún gekk
með bam Áma, er síðar fæddist á eðlilegum tíma þann 15. febrúar
1951. Þá krafðist hún og bóta fyrir bit hundsins. Öllum kröfum
sínum beindi hún gegn þeim hjónum Guðrúnu og Áma.
Árni hafði miklar áhyggjur af þvi, hvemig komið var, og datt nú
í hug að reyna að friðmælast við Guðrúnu. Tókst þetta og lofaði
hún að giftast honum aftur, en setti það skilyrði, að hann hætti
10