Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Blaðsíða 118
116
maí-lokum til september-loka voru flestir ráðsmenn utanbæjar og
engir fundir haldnir á tímabilinu. — b) Skrifstofa ráðsins var opin
tvisvar í viku, og skiptust ráðsmenn á að vera þar. Á skrifstofuna
hafði safnazt mikill sægur af gömlum stúdentablöðum og tímaritum,
sem var til hinna mestu óþrifa. Var gerð gangskör að því að tína
úr það, sem nýtilegt var eða hafði nokkurt minjagildi, og fundinn
staður fyrir það í tumi háskólans. Öðru var á glæ kastað.
Almennir stúdentafundir. 1. Við undirbúning hátíðahaldanna 1. des.
varð ágreiningur um val ræðumanna. Meirihluti stúdentaráðs mælti
með því, að Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra, Ásgeir Ásgeirs-
son alþm. og próf. Ólafur Jóhannesson yrðu beðnir um að tala við
þetta tækifæri. Fulltrúar félags róttækra stúdenta voru andvígir
þessu vali, og ráðið samþykkti að láta almennan fund háskólastúd-
enta skera úr. Þann 14. nóv. var boðað til þess fundar. Mun það vera
einhver fjölmennasti fundur, sem haldinn hefur verið í háskólanum,
en hann sátu hátt á fjórða hundrað stúdentar.
Kom fyrst fram tillaga þess efnis, að fundurinn lýsti yfir þeim
vilja sínum, að stúdentaráð veldi ekki mann til að tala af svölum al-
þingis, sem stjómmálalegur styrr stæði uum. Kom þá fram svo-
hljóðandi frávísunartillaga frá Jóni P. Emils, Höskuldi Ólafssyni og
Hallgrími Sigurðssyni: „Með því að fundurinn lítur svo á, að ræðu-
mannaval 1. des. eigi að falla undir ákvörðun stúdentaráðs hverju
» sinni, og með því að fundurinn lýsir yfir stuðningi sínum við sam-
þykkt meirihluta stúdentaráðs frá 10. þ. m., varðandi þetta mál, vísar
fundurinn málinu og framkominni tillögu frá, og tekur fyrir næsta
mál á dagskrá." Var þessi tillaga samþykkt með 188 atkv. gegn 143.
2. Samkv. áskomn frá 21 háskólastúdent var boðað til almenns
stúdentafundar 5. apríl, til þess að ræða íþróttaskyldu stúdenta. í
lok fundarins var samþykkt að skora á hlutaðeigandi yfirvöld að
fella úr reglugerð Háskóla íslands 28. gr. hennar, sem skyldar há-
skólastúdenta til íþróttaiðkana. Var þessi samþykkt send háskóla-
ráði og menntamálaráðherra. Svar barst 8. maí frá menntamálaráð-
herra þess efnis, að áskorun fundarins yrði ekki sinnt.
3. 14. okt. boðaði stúdentaráð til almenns fundar um lánasjóðs-
málið. Veitti fundurinn stúdentaráði stuðning sinn við það, sem það
hafði aðhafzt í máhnu, og skoraði á ríkisstjómina að bera fram
frumvarp um lánasjóð stúdenta, þegar á þessu þingi. (Verður síðar
vikið nánar að því máli.)
Hátíðahöld og aðrar skemmtanir. 1. desember. a) Hátíðahöldin
1. desember hófust með guðsþjónustu í kapellu háskólans kl. 11 f. h.
Bræðralag annaðist undirbúninginn að þessu sinni, og síra Emil