Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Blaðsíða 122
120
ir í ljós, að sjóðurinn þarf að taka 2.6 millj. kr. lán samtals, og verð-
ur sjálfstæður á 30 árum, með því að stúdentar greiði 5% vexti og
borgi lánin upp á 10 árum frá og með þriðja ári eftir að námi lýkur.
Þessar tillögur sendi ráðið stjómum deildarfélaganna og óskaði
eftir, að málið yrði rætt í deildunum og álit send ráðinu. Barst
svar frá flestum deildunum þess efnis, að menn væru almennt
hlynntir málinu, og fylgdu ýmsar ábendingar.
Síðan gerði ráðið athugun á styrkjamálunum, eins og þau eru nú,
og komst að þeirri niðurstöðu, að 250000 kr. 1947, þegar þær voru
fyrst veittar, hefðu 1950 átt að hækka a. m. k. upp í 630000, miðað
við stúdentafjölgunina og þó sérstaklega hækkaðan námskostnað.
Með tilliti til þessa þótti rétt að fara fram á, að ríkissjóður legði
lánasjóðnum til 500000 kr. á ári. Gerði Gunnar Vagnsson cand. oecon.
áætlun, sem byggð er á þessu framlagi og auk þess, að vextir verði
ekki hærri en 3y2%, og sérstaklega með tilliti til framhaldsnáms
læknanema, að afborganir þyrftu ekki að hefjast fyrr en á fjórða
ári frá því að námi lýkur. Með þessu lagi þarf sjóðurinn, sé miðað
við 500000 kr. útlán á ári, ekki að taka nema V2 millj. kr. lán sam-
tals á átta árum, verður orðin sjálfstæð stofnun á tæpum 20 árum,
en gæti þó, sakir þess, hve varasjóður hans vex ört, aukið útlán
sín að mun nokkrum árum fyrr.
Var síðan boðað til almenns stúdentafundar um málið eins og
fyrr getur.
Þessar athuganir hafa verið sendar ríkisstjórninni eftir vinsam-
legar undirtektir einstakra ráðherra, sem rætt hefur verið við, og
þess farið á leit, að ríkisstjómin flytti þetta frumvarp, og það sem
allra fyrst.
Utanríkismál. Einu afskiptin, sem stúdentaráð hefur haft af utan-
förum stúdenta í ár, er för 9 stúdenta á samnorrænan sumarháskóla
í Askov í Danmörku. Þeir voru: Júlía Sveinbjamardóttir stud. theol.,
Sigrún Guðmundsdóttir stud. phil., Bogi Ingimarsson stud. jur., Bald-
vin Tryggvason stud. jur., Bjöm Hjartarson stud. med., Högni ísleifs-
son stud. oecon., Gísli ísleifsson stud. phil., Stefán Sturla Stefánsson
stud. oecon., og Ármann Kristinsson stud. jur.
Sótti ráðið um styrk til þessarar ferðar og hlaut: frá Sáttmála-
sjóði 5000 kr., frá ríkissjóði 5000 kr., og 1000 kr. danskar frá Dansk-
isl. Forbundsfond. Auk þess veitti ráðið sjálft 2000 kr. styrk. Með
þessum styrkjum lét nærri, að þátttakendur fengju báðar ferðir fríar.
Þá bárust boð á ýmis hátíðahöld stúdenta við erlenda háskóla,
boð á ferðaráðstefnu í Danmörku, á íormannamót stúdentaráða
Norðurlandanna, íþróttamót, bridgekeppni og ýmsar ráðstefnuur um