Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Blaðsíða 121
119
á kvöldvökunni í Sjálfstæðishúsinu 10. apríl. Formaður félagsins er
Jón Haraldsson stud. med.
2) I sambandi við fyrirhugað leikrit gekkst stúdentaráð fyrir því,
að stofnaður var stúdentakór. Tók hann til starfa skömmu eftir ára-
mótin og æfði af fullum krafti fram á vor, og hefur nú tekið til
starfa á ný. Stjómandi kórsins er Carl Billich, en formaður hans
Emil Als stud. med.
3) Þegar rússnesku tónlistarmennimir voru hér á ferð í fyrra,
bauðst Naum Valter píanóleikari til að leika fyrir háskólastúdenta
endurgjaldslaust. Tók stúdentaráð þessu boði, og fóru tónleikamir
fram í hátíðasal háskólans að viðstöddu fjölmenni. Var listamann-
inum forkunnarvel tekið, og færði stúdentaráð honum blómvönd að
leikslokum.
Hlunnindi o. fl. í byrjun starfsársins ógilti stúdentaráðið öll þau
stúdentaskírteini, sem gefin höfðu verið út til þess tíma. Vom gefin
út ný skírteini og þau afhent gegn 10 kr. gjaldi og haldin nákvæm
skrá yfir alla þá, sem skírteini fengu. Reyndust þeir vera 223. Út
á þessi skírteini hlutu stúdentar ýmis fríðindi; sum höfðu þeir haft
áður, önnur vom ný: a) frímiða í Tjamarbíó einu sinni í viku, og
hafði Ragnar Steinbergsson stud. jur. umsjón með því fyrir ráðsins
hönd; b) miða fyrir hálfvirði á nánar tilteknar og auglýstar sýn-
ingingar í Þjóðleikhúsinu; c) miða fyrir hálfvirði á allar sýningar
Leikfélags Reykjavíkur nema fmmsýningar. Var útbúin skrá yfir
alla háskólaborgara og hún send til Þjóðleikhússins og Leikfélags
Reykjavíkur, til þess að hægt væri að hafa eftirlit með því, að þessi
hlunnindi væru ekki misnotuð; d) miða á niðursettu verði á kvöld-
vökur stúdentaráðs og áramótafagnað. Þá fengu þeir stúdentar, sem
fóru út á land í jólaleyfinu, 25% afslátt af flugförum.
Stúdentar í Kaupmannahöfn sendu stúdentaráði bréf og báðu það
að freista þess enn einu sinni, að þeir stúdentar, sem stunda nám
erlendis, fengju afslátt af flugfömm milli landa. Átti ráðið í við-
ræðum við framkvæmdarstjóra Flugfélags íslands um þetta erindi,
en árangur virtist í fyrstu ætla að verða lítill. En 16. okt. barst
ráðinu bréf frá Flugfélaginu þess efnis, að stúdentar, sem stunda
nám erlendis, fengju 50% afslátt af flugförum heim og heiman með
nánar tilteknum skilyrðum.
Lánasjóðsmálið. í framhaldi af starfi síðasta stúdentaráðs hafði
ráðið þetta mesta hagsmunamál stúdenta til meðferðar. Upphaflega
var gert ráð fyrir því, að þær 250000 kr., sem nú eru veittar sem
óendurkræfur styrkur til háskólastúdenta, rynni beint í lánasjóð-
inn, og sjóðurinn tæki síðan sjálfur lán til þess að geta lánað út
500000 kr. á ári. Áætlun, sem byggð er á þessu fyrirkomulagi, leið-