Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1951, Qupperneq 120
118
Dansleikir voru nokkrir haldnir á vegum stúdentaráðs fyrir ára-
mót. Kom í ljós, að kostnaður við dansleiki er orðinn svo gífurleg-
ur, að áhættusamt er að halda þá, enda varð útkoman sú, að heildar-
uppgjör dansleikjanna sýndi lítinn hagnað. Auk þess hefur það sýnt
sig, að það er hrein undantekning, ef stúdentar sjást á þessum
dansleikjum. Af þessum sökum hætti stúdentaráð að stofna til þeirra
hvimleiðu skemmtana, sem almennir dansleikir eru, enda naumast
samboðið stofnuninni að bendla sig um of við slíkt.
Félagsheimili. Á undanfömum árum hefur félagsheimilismálið
mikið verið til umræðu meðal stúdenta. Til þess að einhvers árang-
urs væri að vænta í því máli, var stúdentaráð sannfært um, að rétt
væri að leita samvinnu við önnur akademisk félög í bænum og fá
þau til að vinna að málinu með háskólastúdentum. Þess vegna gekkst
stúdentaráð fyrir því, að sett var á fót nefnd, sem ætlazt er til að
sitji, unz félagsheimilið er komið upp. Fór ráðið þess á leit við
rektor háskólans, dr. Alexander Jóhannesson, að hann veitti þessari
nefnd forystu, hvað hann fúslega gerði. Enn fremur var þess farið
á leit við formann garðstjórnar, Ásgeir Ásgeirsson alþm., að hann
tæki sæti í nefndinni. Varð hann við þeim tilmælum. Aðrir í nefnd-
inni eru: Einar Pétursson cand. jur. frá Stúdentafélagi Reykjavíkur,
Gísli Einarsson cand. jur. frá Lögmannafélagi íslands og Sigurbjöm
Pétursson stud. odont. og Höskuldur Ólafsson stud. jur. frá stúd-
entaráði. — Hefur þessi nefnd þegar tekið til starfa, sótt um lóð
undir félagsheimili á háskólalóðinni og hefur í athugun fmmdrætti
að heimilinu, sem hún hefur látið gera. Er þess að vænta, að innan
skamms heyri stúdentar nánar frá nefndinni, hvað hún hefur í hyggju,
og vonandi láta þeir ekki sitt eftir liggja, þegar til kastanna kemur.
Leik- og hljómlistarmál. 1) í fjáröflunarskyni fyrir félagsheim-
ilið hafði stúdentaráð fullan hug að koma upp stúdentasöngleiknum
„Alt Heidelberg“ á síðastliðnum vetri. Fóru fram viðræður milli stúd-
entaráðs og þjóðleikhússtjóra um það, hvort Þjóðleikhúsið væri
falt undir sýningar á leiknum eða jafnvel hvort þjóðleikhússtjóm
vildi eiga þar hlut að máli, t. d. með því, að Þjóðleikhúsið legði fram
suma starfskrafta, en háskólastúdentar aðra, t. d. söngkrafta. Var
þessu ekki tekið ólíklega í fyrstu, en þegar á átti að herða, var
talið, að undirbúning þyrfti svo mikinn, að ekki væri fært að fram-
kvæma þetta að sinni.
En til þess að halda þessu máli vakandi, gekkst stúdentaráð fyr-
ir því, að „Leikfélag stúdenta“, sem lítið hefur látið á sér bæra um
árabil, var endurreist, og er því ætlað að hrinda þessu og öðmm
leiklistarmálum fram, eftir því sem fært þykir. Leikfélagið annað-
ist útvarpsleikrit í kvöldvöku stúdenta síðasta vetrardag og leikþátt