Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1965, Qupperneq 12
10
cru tengdar við handritastofnunina, og vissulega vona allir Is-
lendingar, að það meginmál, er mjög tengist þeirri stofnun í
hugum vorum í dag, fái greiðar og góðar lyktir.
I málefnum háskólabókasafns hefir ýmsu þokað til betri veg-
ar á háskólaárinu. Heimild fékkst til að ráða aðstoðarbókavörð,
og var cand. mag. Einar Sigurðsson skipaður í það starf frá
1. apríl s.l. að telja. Er það mikil bót fyrir safnið að fá nýjan
bókavörð, og býð ég hann velkominn að safninu. Þá hefir mik-
ið verið unnið að því að auka og bæta geymslurými safnsins,
og nemur sú aukning um 30.000 bindum, og er frekari aukning
kleif og fyrirhuguð. Þá hefir starfsaðstaða bókavarða verið
bætt og breytingar gerðar á lestrarsal, sem bæta lestrarskil-
yrði þar. Ýmsar góðar bókagjafir hafa borizt á árinu. Lög-
mannafélagið norska hefir fyrir forystu Eilivs Fougners hæsta-
réttarlögmanns gefið ágæta gjöf norskra rita, og stóðu norskir
laganemar öðrum þræði að þeirri gjöf. Þá hefir lagadeildin
í Lundi sent góða gjöf sænskra lögfræðirita, og átti prófessor
Karl Olivencrona frumkvæði að þeirri gjöf. Minnesotaháskóli
hefir og sent merka gjöf bóka og tímarita, er háskólaforlagið
þar hefir gefið út, svo og nokkrar hljómplötur. Hefir núverandi
forseti Minnesotaháskóla, dr. Meredith-Wilson, oftlega sýnt það
i verki, að hann vill stuðla að því að treysta tengslin milli há-
skóla síns og Háskóla Islands, og væri það ánægjulegt, ef unnt
væri að styrkja til muna samband þessara tveggja háskóla.
Enn vil ég geta gjafar bóka og kennslutækja frá British Coun-
cil svo og bókagjafar frá Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna
og Fulbrightstofnuninni. Eru þær gjafir allar mikilsverðar fyr-
ir enskukennsluna hér við Háskólann. Ágæt tímaritagjöf frá
dr. Filip Paulson í Malmö er til mikillar nytsemdar fyrir
kennslu í tannlæknisfræði. Ragnar hæstaréttarlögmaður Jóns-
son sendi lestrarsal laganema góða bókagjöf, er lestrarsalurinn
var tekinn í notkun. Á Háskólinn honum og gott upp að inna
vegna útgáfu hans á mörgum fræðiritum, sem ógerlegt hefði
verið að koma út án hans atbeina.
Um málefni háskólabókasafns vil ég enn geta þess, að á fjár-
lögum fyrir árið 1962 var í fyrsta skipti í rösk 40 ár tekin upp