Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1965, Side 141

Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1965, Side 141
139 mála, Jón Oddsson, yfirmaður utanríkismála, og Vésteinn Ólason, yfirmaður almennra félagsmála. Verkaskipting var mikil innan ráðsins, en samvinna með miklum ágætum allan starfstímann. Haldnir voru 35 bókaðir fundir. í apríl 1964 lét Gunnar Gunnarsson, stud. oecon., af störfum sem fram- kvæmdastjóri ráðsins og við tók Lúðvíg B. Albertsson, stud. oecon. S túdentaheimi li. Vorið 1964 var stofnuð sérstök nefnd til þess að vinna að byggingu félagsheimilis fyrir stúdenta á vegum Háskólans. Var hún þannig skipuð: Formaður Stefán Hilmarsson, bankastjóri, tilnefndur af menntamálaráðherra, prófessorarnir Þórir Kr. Þórðarson og Loftur Þorsteinsson, kosnir af háskólaráði, og stúdentarnir Ellert Schram, stud. jur., og Auðólfur Gunnarsson, stud. med., kosnir af Stúdentaráði. Málið hafði verið í undirbúningi um nokkurt skeið og fengizt 500.000 kr. f járveiting til þess á fjárlögum. Á fyrsta fundi hinnar nýju nefndar, 16. júní, voru henni afhentar að gjöf kr. 100.000,00 til minningar um Guðmund Jónasson, B.A., frá Flatey á Skjálfanda frá nokkrum vinum, skólafélögum og vanda- mönnum hans. Skal fénu varið sérstaklega til byggingar húsakynna Stúdentaráðs. Standa stúdentar í mikilli þakkarskuld fyrir þessa ein- staklega höfðinglegu gjöf. Nefndin hefur ásamt háskólarektor unnið að framgangi málsins. Hugmynd hennar er, að stúdentaheimilið verði viðbótarbygging við Gamla Garð, og er ætlað, að það bæti til mikilla muna rekstrar- aðstöðu Stúdentagarðanna á veturna og hótelsins á sumrin, auk þess að leysa húsnæðisvandræðin fyrir félagsstarfsemi stúdenta. Nefndin hefur fengið Jón Haraldsson, arkitekt, til að gera tillöguteikningu að húsinu, sem nú liggur fyrir. Á henni er gert ráð fyrir, að húsið verði þrjár hæðir. Á fjárlögum þessa árs fékkst 1 milljón króna fjárveiting til stú- dentaheimilisins. Stúdentaráð kaus sérstaka fjáröflunarnefnd félags- heimilisins. Formaður hennar var Már Pétursson, stud. jur. Námslán. Á árinu 1964 ákvað stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna að ætla alls allt að 5.5 millj. króna til lánveitinga til stúdenta við Hásícóla ís- lands það ár. Alls var 249 umsækjendum veitt lán í marz, en 239 í nóvember. Lánin voru að upphæð frá kr. 8.450,00 til 16.900,00. Ný handbók stúdenta kom út í nóvembermánuði 1964. Undirbúning útgáfunnar önnuðust
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.