Árbók Háskóla Íslands - 01.03.1966, Qupperneq 22
stofnað, og enginn maður lagði jafnmikið af mörkum til bygg-
ingarstarfseminnar sem hann. Háskólabyggingin er stílhrein
og fögur bygging, sem lofar verk hins mikla meistara, próf.
Guðjóns Samúelssonar, er sæmdur var doktorsnafnbót í heim-
speki, er byggingin var vígð. Sú stúdentakynslóð, sem nú sækir
Háskólann, kann eðlilega ekki full skil á því, hvílík viðbrigði
það voru fyrir okkur, sem þá voru stúdentar, að flytja úr
þrengslunum í Aiþingishúsinu í hina nýju háskólabyggingu.
Það var lífsreynsla, sem ég vildi ekki án vera. Háskólabygg-
ingin er nú orðin alltof lítil til þess, að háskólastarfsemin verði
hamin þar, og er aivarlegt ástand framundan, nema stofnað
verði til mikilla byggingaframkvæmda og óslitinnar bygginga-
starfsemi. Á þeim málum þarf að gripa af hinni sömu bjart-
sýni, djörfung og dugnaði, sem einkenndu allar framkvæmdir
við háskólabygginguna. Hér þarf til að koma sameiginlegt átak
Háskólans og öruggur og góður skilningur ríkisstjórnar, Al-
þingis og íslenzkrar þjóðar allrar.
Háskólabyggingin gerði kleift að koma upp háskólabókasafni,
þar sem sameinaður var bókakostur deildanna og einstakar
stórgjafir bóka, sem Háskólanum hafa borizt. Var safnið stofn-
að formlega með ræðu próf. Alexanders Jóhannessonar háskóla-
rektors hinn 1. nóv. 1940. Fyrsti forstöðumaður safnsins var
dr. Einar Ól. Sveinsson, sem síðar var skipaður háskóla-
bókavörður 1943, er lög um það embætti höfðu verið sett.
Gegndi hann því embætti til 1945, er hann var skipaður
prófessor, en þá tók við embætti hans dr. Björn Sigfússon,
núverandi háskólabókavörður. Bókasafnið hefir vaxið allmikið
á þessum árum, eða úr um það bil 31.000 bindum í um 118.000
bindi, og hefir þróunin þó verið uggvænlega hæg. Árið 1941
voru sett lög, er mæltu svo fyrir, að háskólabókasafn skyldi
hljóta ókeypis eitt eintak af öllum ritum, sem prentuð eru hér
á landi, og hefir munað mikið um þau framlög. Háskólabóka-
safn hefir ávallt búið við þröngan kost, bæði um starfslið og
fjárveitingar til bókakaupa. Var það ekki fyrr en 1961, að fjár-
veitingar til safnsins voru teknar á fjárlög, en til þess tíma
þurfti Háskólinn að kosta bókakaup af litlum tekjum Sátt-