Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1984, Side 11
2
Ræður rektors Háskóla íslands
Afhending prófskírteina 23. október 1982
Agcetu kandidatar!
Við erum hér saman komin til að fagna
merkum áfanga í lífi ykkar. Þið og fjöl-
skyldur ykkar hafið fært fórnir til að ná
honum. Jafnframt hefur þjóðfélagið stuðl-
að að því að þið fengjuð að nema það sem
ykkur fýsti. Vissulega ætti frjálst val at-
vinnu að auka lífshamingju og vera hvatn-
ing til dáða fremur en nauðung og þrælk-
un, en hitt er svo annað mál, að þau störf,
sem þið komið til með að stunda, geta
reynst misskemmtileg miðað við þær von-
ir sem þið bunduð við þau.
Eg er ekki hér til að leggja ykkur lífsregl-
umar, en mig langar samt til þess að hvetja
ykkur til að bera virðingu fyrir hverju því
starfi, sem þið takið ykkur fyrir hendur, og
látið ykkur finnast það skemmtilegt. Til
þess þarf bæði sjálfsögun og þjálfun í já-
kvæðum viðhorfum. Sannmenntaður
maður er athugull og sér nýjar hliðar á
hverju máli, bendir á hagkvæmari starfs-
aðferðir, einfaldari úrvinnslu og gerir leið-
>nleg störf bærilegri. Hann kann að bregð-
ast við óvæntum atburðum án þess að
guggna eða brotna.
Borgar það sig að læra? Ég sá hér á vegg
frammi að tillaga er fram komin frá hópi
stúdenta að l. desember verði rætt um efn-
>ð vísindi og kreppa. í greinargerð með til-
[ögunni er bent á að háskólanum sé haldið
1 ijársvelti, eins og ríkisstjórninni var raun-
ar rækilega bent á í þessari viku. Ekki
yerður unnt að veita þriðja hverjum ís-
•endingi framhaldsmenntun án ijárveit-
inga. í greinargerðinni er einnig bent á þá
hættu að kreppuástand kunni að bjóða
þeirri hættu heim, að farið verði að mæla
gildi menntunar eftir því hversu „arðbær"
hún er.
í fyrsta lagi má deila um það, hvað skuli
kalla kreppu. Harry Truman, forseti
Bandaríkjanna, sagði að það væri „aftur-
kippur“ þegar nágranni þinn væri at-
vinnulaus, en „kreppa" þegar þú værir
það sjálfur.
í öðru lagi er ástæðulaust að sverta
arðsemishugtakið. Við getum deilt um
það, hvernig mæla skuli velmegun eða
hagsæld, jafnvel hvort unnt sé að marka
velferð á kvarða. En undir niðri hlýtur
hver og einn að meta það, hvað hann telji
sig hafa upp úr náminu, hvort sem það eru
væntanlegar ævitekjur, svölun fróðleiks-
fýsnar eða afþreying. Á meðan peningar
eru „afl þess sem gera skal“ er ekki óeðli-
legt að spurt sé um arðsemi háskóla-
menntunar miðað við aðrar leiðir til
starfsvals. En samt er menntun ekki og á
ekki að vera tekjutrygging og aðgöngumiði
að stúkusætum. Hver og einn verður að
sýna hvað í honum býr.
Háskólinn hefur vakið athygli á fjölgun
stúdenta og aukinni aðsókn að háskóla-
námi. Síðan 1979 hefur fjölgað um 1000
manns í Háskóla íslands, en rekstrarfjár-
veitingar hafa hins vegar lítið hækkað að
raungildi. Framkvæmdir eru miklar eins
og er, en nýbyggingar munu flestar stöðv-
ast á næsta ári að óbreyttu fjárlagafrum-