Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 3
Inngangsorð.
BÚNAÐARRITIÐ, sem Hermann Jónasson á Þing-
eyrum hefiir gefið út frá því árið 1887, er nú
orðið eign Búnaðarfjelags íslands, og heldur fram-
kvæmdarstjórn fjelagsins því áfram með óbreyttu nafni.
í síðasta árgangi Búnaðarritsins var skýrt frá því,
hvernig Búnaðarfjelag íslands er til orðið, og jafnframt
prentuð lög fjelagsins.
Samkvæmt 1. gr. laganna er tilgangur fjelagsins
sá, að efla landbúnað og aðra atvinnuvegi landsmanna,
er standa í nánu sambandi við hann.
Mikið er hjer að vinna, þar sem landbúnaðurinn
er og verður sú atvinnugrein, er nieiri hluti íslendinga
lifir við, og allir fiuna til þess, hve mjög honurn er á-
bótavant og við hve mikla örðugleika bann á að berjast
nú sem stendur.
Það er því eðlilegt, að mikils verði krafizt af bún-
aðarfjelagi landsins, sem hefur allmikil peningaráð, og
ætti því að geta útvegað meiri leiðbeiningar til búnað-
arframkvæmda en kostur hefur verið á áður; og því
verður að treysta, að sú verði reyndin, þegar fram
líða stundir, að siíkt fjelag gefist eigi síður vel hjá
oss en sams konar landsfjelög hjá frændþjóðum vorum
á Norðurlöndum.
Eðlilega verða framkvæmdir fjelagsins ekki miklar
fyrst í stað. Þetta fyrsta ár verður að ýmsu leyti
námsár, til að búa í garðinn fyrir búnaðarþingið að