Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 10
10
lands suðuramti. Ætlast fjelagið til þess af honum sjer
í lagi, að hann tali fjelagsins máli á æðri stöðum.
§ 10.
Hinir embættismenn fjelagsins veljist meðal reglu-
lima, eptir atkvæðafjölda, á aðalfundi þann 5. júlí; haíi
þeir það umboð á hendi í 2 ár, og má þann, sem frá
gengur, aptur velja til hins sama eður annars embætt-
is. Þjóni þeir allir ókeypis, en skrifföng og önnur út-
gjöld í fjelags þarfir greiðist af sjóði þess, ef óskað verð-
ur.
§ 11.
Aukaforsetinn á að stjórna öllum athöfnum fjelags-
ins á þess fundum; einnig stýra ráðslögunum fulltrú-
anna og fjelagsstjórnarinnar á samkomum og utansam-
komu og daglegum sýslunum, sem því og þess fjárhag
viðvíkja. Líka beri hann umhyggju fyrir, að lögum
fjelagsins sje hlýtt, samt að öll reglusemi sje við höfð
bæði yfir höfuð og sjer í lagi á fjelagsmótum. Hann
gefi gjaldkera, samkvæmt fjelagsins og fulltrúanna und-
irlagi, tilhlýðilegar inn- og útgjalda skipanir og hafi
uákvæma umsjón með, að fjársjóður fjelagsins sje óhult-
ur og að gjaldkeri með reglusemi haldi daglega bók
yfir þess inn- og út-gjöld. H'ann stýrir fjelagsins brjefa-
skriptum, undirskrifar þess brjef og gengst fyrir inn-
kröfu þeirra tillaga, sem ógoldin eru í rjettan gjald-
daga. í sjerhverju því, sem mikið er í varið, og þó
ekki má til úrlausnar bíða atkvæða á lögboðnu fje-
lagsmóti, hefur hann ráð af skrifara, gjaldkera og svo
mörgum af fulltrúunum, sem hann fær til náð, og fylg-
ir í úrskurði slíkra málefna flestum atkvæðum. Að
lyktum gjörir hann á fjelagsmóti þann 5. júlí skýra
grein fyrir cmbættismeðferð sinni það iiðna ár,