Búnaðarrit - 01.01.1900, Qupperneq 21
21
Flutt 15 — 100 —
Fyrir tólgarverkun, verðlaun ... 15 — = 30 —
c) Fyrir garðyrkju, þóknun........... 20 —
d) Fyrir húsagjörðir, verðlaun .... 30 rd.
þóknun........3o rd. = 60 rd.
210 rd.
í janúarmánuði 1867 bar sjálfseignarbóndi Magnús
Jónsson í Bráðræði við Reykjavík þá uppástungu fram:
1. Að fjelagið hætti öllum verðlaunum, eins löguðum
og þau þá væru.
2. Að fjelagið gæfi árlega út á prent innleud, og það
af útlendum búnaðarritum, sem væru við hæfi ís-
lendinga.
3. Að fjelagið hefði í hreppi hverjum, er heyrði undir
það, 2 fjelagsfulltrúa, er skýrði fjelagsstjórninni ár-
lega frá öllum búnaðarendurbótum þar í hrepp, sem
fjelagsstjórnin hagnýtti og færi mcð, eins og henni
þætti bezt henta.
4. Að fjelagsstjórnin láni mönnum af sjóði fjelagsins
til jarða- og búbóta frá 25—100 rd. hverjum móti
vægum vöxtum, svo sem 3°/0, og fyrsta voðrjetti í
jarðeign, eður, þeim sem ekki eiga hana, ilausafje,
hverjum um svo langan tíma sem henta þætti.
Til að íhuga mál þetta voru kosnir á fundinum
í nefnd:
1. Höfundur uppástungunnar Magnús Jónsson,
2. málaflutningsmaður Jón Guchnundsson og
3. skólakennari Halldór Kr. Friðriksson.
Þessir nefndarmenn gátu oigi orðið einhuga um
mál þetta. Magnús Jónsson og Halldór Kr. Friðriks-
son rjeðu til:
1. Að fjelagið sæi um, að á kostnað fjelagsins eða
fyrir tilstuðlun þess væru samdar og prentaðar ritgjörð-