Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 23
23
IIÍ. 1868—1899.
Á júlífundinum 1868 afsalaði prófastur Ólafur Páls-
son sjcr forsetadæmi fjelagsins, og sömuleiðis hinir tveir
stjórncndur þess, skrifari og gjaldkeri, sínum störfum.
í stað Ólafs prófasts Pálssonar var þá kosinn forseti
Halldór Kr. Friðriksson, kennari við lærða skólann í
Reykjavík.
Á þessum sama fundi, 6. d. júlímán., var ráðið af eptir
uppástungu Magnúsar Jónssonar í Bráðræði, að bera
þá bæn fram fyrir stjórnina, að hún vildi annaðhvort
sjálf eða fyrir milligöngu hins konunglega landbúnaðar-
fjelags í Danmörku útvega vatnsveitingamann, og sjá
um, að hann kæmi hingað til Reykjavíkur snemma í
maímánuði næsta ár, og yrði hjer svo fram eptir sumr-
inu, og að stjórnin vildi styrkja þetta fyrirtæki með
ríílegu fjártillagi. Stjórn fjelagsins skrifaði samsum-
ars stjórninni um þetta mál, og tók hún vel undir það,
og sendi hingað næsta vor vatnsveitingamann, að nafni
Níels Jörgensen, og skyldi hann dvelja hjer til næsta
hausts; ætti hann eigi einungis að vinna að vatnsveit-
ingum, heldur einnig kenna þær bændum. Hann hafði
og með sjer ýms verkfæri, og átti fjelagið hjer aðborga
100 rd. af verði þeirra, en landbúnaðarfjelagið danska
lofaði að borga það, sem verkfæri þessi kostuðu meira.
Stjórnin borgaði ferð hans fram og aptur millumKaup-
mannahafnar og Islands og helminginn af kaupi hans,
en landbúnaðarfjelagið danska hinn helming; en fjelag-
ið hjer átti að sjá honum fyrir fæði og húsnæði, þá er
hann væri vinnulaus, en bændur, sem hann ynni bjá,
voru skyldir til að hýsa hann og fæða, meðan hann
ynni hjá þeim. Vatnsveitingamaður þessi vann að
vatnsveitingum bæði hjér í nánd við Reykjavik, og
oinkuin og most í Árnessýslu, og var þar rnikil ept-