Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 31

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 31
8Í halda eiginleglcikum stutthyrnda kynsins, og því leng- ur sem leið, urðu erfiðleikarnir tilfinnanlegri. Eina ráðið til þess var auðvitað það, að útvega stöðugt nýja gripi af því kjni frá Englandi, og nota þá til kynbóta. En það þótti ærið kostnaðarsamt, og gáfust margir upp á því. Pað, sem einkum olli því, hve erfitt gekk að við halda hinum upphaflegu eiginlegleikum stutt- hyrnda kynsins, var fyrst og fremst meðferð öil og hirðing á skepnuuum. Stutthyrnda kynið var alið upp við gott fóður og framúrskarandi umönnun og nákvæmni í alla staði. Afkomendur þess á Jótlandi þoldu því eigi þá meðferð, scm á þeim var höíð þar, enda var hún í alla staði ólík því, sem þetta nautpeningskyn átti að venjast heima hjá sjer á Englandi. Á Jótiandi var hirðingin fremur ljeleg, og fóðrið opt lítið og eigi gott. Auk þess var loptslag og veðurátta allólík því, sem þetta kyn hafði vanizt áður; var því eigi að furða, þótt efitt gengi að við halda því, og að kostir þess og eiginlegleikar gengju úr sjer eða hyrfu ef til vill með öllu. — Þegar Danir sáu, hve erfiðlega gekk, að bæta naut- pcningskynið með útlendum kynbótagripum, fóru þeir að leggja stund á að gjöra kynbætur nieð sínum eigin gripum, og heppnaðist það miklu bet- ur. Það var einkum prófessor Proschs, sem gjörðist talsmaður þeirrar aðferðar, og sýndi frain á, hverja þýðingu það hefði, að bæta og rækta það kyn, er væri í landinu sjálfu. Jafnhliða þeim kynbótum var einnig brýnt fyrir bændum, að fara vel með skcpnurnar, enda fór þá meðferð þeirra óðum batnandi, cinkum eptvr 1864. Nautgriparæktin tók þá stór skref í framförun- um á árunum 1864—1880, og cptir það og allt fram á þennan dag hefur henni fleygt áfram svo að segja með ári hverju. — Á árunum 1850—1860 er meðalkýrnyt

x

Búnaðarrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.