Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 38
88
mjólkurbúin í sambandi við hana, og svínaræktin, hef-
ur haldizt í hendur þcssi ár, og má svo að orði kveða.
að þessar 3 greinir búnaðarins standi í óaðskiljanlegu
sambandi hver við aðra. Þær styðja og við halda að
nokkru lcyti hver annari, enda myndar smjörið og flesk-
ið aðalverzlunarvöru bóndans. Sem dæmi þess, hversu
smjörframleiðslan hefur aukizt. skal þess að eins getið,
að á árunum 1865—1875 var flutt út af smjöri fram
yfir það, sem inn var flutt, I2V2 milion pd. til jafn-
aðar hvert ár. En árin 1885—1895 nam hið útflutta
smjör fram yflr hið innflutta 60’/9 milíon pd. að jafn-
aði ár hvert.
Árið 1896—97 var út flutt meira en inn var flutt
92,3 milíonir pd. af smjöri; en 1897—98 nain það 109
milíonum punda. Af þessu má sjá, hve smjörfram-
leiðslan hefur feikilega aukizt síðan 1865, og að hún
eykst árlega.
En hvað er nú það, sem hcfur cinkum hjálpað
nautgriparæktinni áfram í Danmörku, eða stutt að hin-
um skjótu framförum hennar? Og hvað hofur verið
gjört frá hálfu hins opinbera til þess að styðja að um-
bótum þeim, er hún hcfur tekið? Það, scm cinkum
hefur stutt að framförum nautpeningsræktarinuar og
flýtt fyrir þeim, er þetta:
1. Sýningar á nautgripum.
2. Búnaðarfundir.
3. Kynbóta-fjelög.
4. Skýrslur 0g töflur yfir arð og tilkostnað nautgripa
eða kúpeningsins.
Auk þess má telja, að mjóikurbúin hafi stutt að
framförum og betri mcðferð nautpeningsins, bæði
beinlínis og óbcinlínis. Skal nú minnzt nokkru