Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 58

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 58
Laiidbúnaðurinn á síðasta l)ingi. Eptir Þórhall Bjarnarson. Þingið síðasta (1899) mun hafa verið langörlát- asta þingið við landbúnaðinn, veitti á fjárlögunum full- ar 40,000 kr. hvort árið, auk þess sem það ánafnaði landbúnaðinum allríílegan styrk með Ræktunarsjóðslög- unum. Það er með öðrum orðum nú komið svo, að 20. hluti landsfjárins gengur árlega til eflingar búnaði. Fjárhagsárið 1898—99 leggja Danir 4 milíónir kr. til landbúnaðarins hjá sjer; það er tiltölulega nokkru meira en veitt er hjá oss, en það skiptir þó mestu, ef fara á í samjöfnuð, að hjá Dönum er allt í bezta blóma undir. í annan stað mætti og benda á það, að töluvert rncira en þriðjungur af ríkisgjöldum Dana er kostnað- ur, sem vjer höfum alls ekkert af að segja, til hers og vaxtagreiðslu af ríkisskuldum; sje búnaðarstyrkur Dana því miðaður við gjöldin, er sameiginleg geta heitið, verður hann tiltölulega miklu hærri en íslenzki búnað- arstyrkurinn. Það er nauðsyn að vckja eptirtekt á slíku og koma við tækifæri með samanburð frá fleirum löndum, j)ví að ýmsir kunna að verða til að draga úr og telja eptir. Allir vjer, sem elskum landið og viljum græða það, verðum að krefjast margfalt stærri framlaga til land-

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.