Búnaðarrit - 01.01.1900, Blaðsíða 63
63
byrjunin verður. Maðurinn heitir Hans Grönfeldt Jepsen
og kemur hingað til landsins i júlímánuði. Kennslu-
staðurinn er enn eigi ráðinn, en væntaulega verður það
Hvanneyri, eins og var tilætlun þingsins. Til þess að
kennsia mannsins komi að notum, þarf að reisa hús
eða skála með steinlímdu gólfi, 18 álna langan og 8
álna breiðan. Verði íbúð þar upp af, kostar slíkt hús
3—4000 kr. Amtsráðið, er saman kemur i lok júní-
mánaðar, verður að ráða af, hvort skólinn skuli taka við
manninum og reisa húsið. Búnaðarfjelag landsins tek-
ur að sjer allan kostnað annan en þann, sem stafar af
húsinu og auðvitað verða nemendur að borga fæðið.
Fyrirsjáanlega hrökkva hinar veittu 2000 kr. áárickki
fyrir kostnaðinum. Nógir vegir cru að koma mannin-
um niður á heimili, þar sem allmikið kúahald er og
húsbóndi vill leggja á sig byggingarkostnaðinn, en stór-
um lakara væri að hafa smjörkennsluua annarstaðar
en á Hvanneyri, og er vonandi, að eigi komi til þess,
að skólinn sleppi þvi boði, að fá sjer tryggða alla for-
göngu í smjörgjörð landsins um margra ára skeið. Þar
sem húsið cr óreist nú, og efni eigi fengið, verður smjör-
gjörð eigi komið þar við fyr cn í haust, en Búnaðar-
fjelagið danska taldi æskilegt, að eiga ekkert við hús-
smiðið fyr en maðurinn væri kominn.
Nokkur hreifing er komin til að setja á fót mjólkurbú;
cínkum er það í Árnessýslu og enda í Rangárvallasýslu.
Hörgdælirí Fyjafirði munu og hafa einhvcrn fyrirbúnað.
Námsstúlkurnar munu verða sendar úr þeim byggðum, sem
ætla að koma sjer upp mjólkurbúum, og virðist óráð að
stofna þau fyr en forstöðukonur eru fcngnar útlærðar
frá smjörgjörðarmanninum danska. Saklaust er því
þetta árið, þótt ekki fáist lán til stofnunar mjölkurhúa.
Til slíkra lánveitinga eru ætlaðar 20,000 kr. á fjárhags-