Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 72

Búnaðarrit - 01.01.1900, Síða 72
72 bann gegn innflutningi á ósiituðum húffuni. Allar sið- aðarþjóðirhafa stranga gæzlu á innflutningi ósútaðra húða vegna hins margreynda voða, sem af þeim stafar; spillta varan, sem eigi getur seizt annarstaðar, er þá íiutt til varnarlausa landsins. Pað cr því stök mildi, að tjónið er eigi margfalt meira hjá oss af slíkum inn- flutningi, en verið hefur hingað til. Yið því mætti og búast, að hjer væri minnzt á þær 10,000 kr., sem veittar voru Gullhringusýslu til jardræld- ar í bágstöddustu hroppunum. Sigurður búfræðingur Sigurðsson hefur verið fenginn til þess af sýslunefnd- inni að skoða mannvirkin og skýrsla mun væntanlega sjást um þau síðar. Eptir því som vinnunni átti að haga, verða vart gjörðar harðar kröfur til að fullnægja út- horgun „styrksins“; hitt skiptir mestu, að þessi „rækt- uðu svæði,, verði í raun og veru ræktuð til frambúðar- nytja fyrir sveitarfjelögin. Um það skal engu spáð. Annars kemur mjer til hugar við þessa þurfamanna- ræktun atvik, sem kom fyrir hjer í Reykjavík: Theó- dór heitinn amtmaður kom því á, að dregið var að grjót til að girða fáeinar dagsláttur til kartöílugarðs fyrir þurfainenn bæjarins; áttu þeir að fá ókeypis sáð- rciti þar; en sú ráðstöfun varð að engu, af því að þurfamennirnir voru eigi álitnir færir um að sækja á- burðinn í fjöruna. Rœhtunarsjóðslögin eru nefnd hjer að framan. Það er sjcrlega myndarleg gjöf frá þinginu til landbúnaðar- ins; hjer um bil sama, sem að veittar væru 6000 kr. til hans árlega um aldur og æfl; og við það að þctta er sjerstakur sjóður, verður ekki farið að telja gjöfina

x

Búnaðarrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.