Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 76

Búnaðarrit - 01.01.1900, Page 76
76 stafur, — er björgin af eigin landi ræktuðu rjett sem cngin fyrir þennan nýja sjávarlýð. Björgin kæmi fyrst að marki, þegar kýrin væri fengin. Það er stórinerkilegt íhugunarefni, hvað gjöra megi til að laða hina mörgu og smáu til að rækta landið margfalt meir en þeir gjöra nú, hvort heldur það er til sjávar eða sveitar. Þingið 1899 boðar landbúnaðinum betri kjör og meira gengi. Þörfin er bæði á nýrri löggjöf og miklu meira fje. Páll amtmaður Briem hefur í „Lögfræðingi“ f. á. tekið fyrir einn vandasamasta þáttinn, ábúðarlöggjöfina. Tímarit það er ekki eingöngu um lögfræði, heldur og um löggjafarmál og þjóðhagsfræði og lætur sjer sjer- staklega annt um landbúnaðinn. Bændur, sem til þings eiga að kjósa í haust, verða að muna eptir því, að taka þau heit af nýju þingmönnunum, að reynast ötulir styrkt- armenn búnaðarins. Búnaðarþing Búnaðarfjelagsinsmun og á komandi sumri búa í hendur næsta alþingi og vera í samverki með því. Fyllstu vonir eru því til, að þingið 1901 verði enn betra landbúnaðinuin enþingið 1899, sem í þeirri grein tók þó öllum eldri þingum fram.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.