Búnaðarrit - 01.01.1915, Side 47
BÚNAÐARPJT
41
Menn geta keypt köttinn í sekknum, er um fræ-
kökur er að ræða. í þeim getur verið sandur og mikið
af ómeltanlegu hreistri utan af fræinu.
Hið 5. í röðinni, maismjöl, kannast menn við; með
því er óhætt að mæla sem góðu fóðri handa öllum
skepnum.
Hið 6. og 7. í röðinni, Bran, er búið til úr hveiti,.
einkum ætlað kúm og gefið á þann hátt, að hræra það
saman við vatn.
Það 8. í röðinni, Breivery, eru byggleifar frá öl-
gerðarhúsum. Lítur það ekki ósvipað út og hafragrjón.
Það er gefið öllum skepnum og á líkan hátt og Bran,
en þó einkum talið hentugt handa mjólkurkúm. Eins
og menn sjá, er þetta ódýrasta tegundin í töflunni, og
vil eg eindregið ráða mönnum til að reyna hana, og svo
ódýrustu frækökurnar.
Það 9. í röðinni, hafrar, eru helzt notaðir handa
hestum. Þeir hafa svipað fóðurgildi og Brewery, en eru
miklu dýrari.
Þá kemur rúgurinn, sem er í raun og veru of dýrt
skepnufóður. Þó er skynsamlegt fyrir forðabúrin að eiga
birgðir sínar í rúg, af því til hans má grípa í ísárum
og nota til manneldis.
Heyið er alt of dýrt til að ílytja það inn.
Hið siðasta í röðinni, Molasses, er talið hentugt
mjólkurkúm. Það er búið til úr sykurrófnaleifum frá
sykurgerð. í því er ekkert teijandi af meltanlegri eggja-
hvitu eða feiti, og því óhæft sem kraftfóður. Töluvert
hefir verið flutt inn af þessari tegund Upp á síðkastið,
en eins og menn sjá er það mjög dýrt.
Næst vil eg geta hór um eina tegund, sem ekki er
í töílunni, en menn ættu að flyfja inn og nota. Það er
svo nefnt Bock Salt, sem eg vil nefna fóðursalt. Það
er óhreinsað salt í hörðum steinum, sem látnir eru liggja
i görðum og jötum og út um haga hjá fénaði, og hann
sleikir af eftir vild. Salt þetta er notab þannig um alt