Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 16
Skýrsla
um störf Búnaðarfélags íslands
árin 1937 og 1938.
Stjórn félagsins.
í ársbyrjun 1937 skipuðu þessir menn stjórn félags-
ins: f>. Magnús Þorláksson, óðalsbóndi á Blikastöðum,
formaður, Bjarni Ásgeirsson, óðalsbóndi og alþingis-
maður á Reykjum ritari og Svavar Guðmundsson,
bankastjóri, sem tók sæti Tryggva Þórhallssonar, sem
varamaður hans, þegar hann lézt.
Á Búnaðarþingi 1937 voru þeir Þ. Magnús Þorláks-
son og Bjarni Ásgeirsson endurkosnir í stjórnina og
varamenn þeirra Magnús Guðmundsson, alþm. og
Björn Konráðsson, hústj. en í slað Svavars Guðmunds-
sonar var Jón Jónsson, bóndi í Stóradal kjörinn í
stjórnina og varamaður hans var kosinn Kolbeinn
Högnason, bóndi i Kollafirði.
Á stjórnarfundi 1. apríl 1937 skipti stjórnin með
sér verkum þannig, að Þ. Magnús Þorláksson var kos-
inn formaður, en Bjarni Ásgeirsson ritari.
Árið 1937 hélt stjórnin 28 fundi, en árið 1938, 14.
Utan funda leitaði búnaðarmálastjóri mjög oft álits
stjórnarnefndarmanna, og þó einkum formanns, þeg-
ar ákveða þurfti mál, er ekki gátu beðið til næsta
fundar.
Endurskoðendur reikninga félagsins hafa verið
þeir Jón Guðmundsson, skipaður af rikisstjórninni
og Jakob H. Lindal, kosinn af Búnaðarþingi. Gjald-