Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 22
18
BÚNAÐARRIT
Þá má og get;i þess, að ráðuneytið snýr sér til fé-
lagsins um fjölmörg mál, er varða landbúnað, og ósk-
ar eftir tillögum þess um þau, Ráðunautar félagsins.
gera sínar tillögur hver í sinni sérfræðigrein, en af-
greiðsla á slíku fer að mestu eða öllu leyti fram frá
skrifstofunni.
Að lokum eru svo sérmál Búnaðarfélagsins afgreidd
frá skrifstofunni, eftir því sem stjórn félagsins eða
búnaðarmálastjóri ákveður í hvert sinn. Má þar til
nefna útgáfu og afgreiðslu Búnaðarritsins, innheimtu
Freys, sein skrifstofan annast nú um, ötl viðskipti við
Búnaðarsamböndin og fjöldamargt fleira, sem hér er
ekki ástæða til að nefna, en kemur fram annarsstaðar
í þessari skýrslu.
liúnaðarþing- 1937.
Samkvæmt ályktun félagsstjórnar og tilkynningu
til búnaðarþingsfulltrúa, dags. 11. des. 1936, var Bún-
aðarþing kvatt saman til fundar í Reykjavík, þriðju-
daginn 16. febr. 1937. •
Þann dag kl. 5 síðdegis kom þingið saman í liúsi
Iðnaðarmannafélagsins í Lækjargötu 14 í Reykjavík.
Þingað var sett af formanni félagsins, Þ. Magnúsi
Þorlákssyni. Þetta Búnaðarþing er hið 20. í röðinni,
ef aðalþing eru talin, en hið 22., ef aukaþing eru talin
með. Búnaðarþingsfulltrúar mættu allir og sátu þing-
ið til enda. Þingfundir voru alls haldnir 34, auk tveggja
lokaðra funda. Fyrir þinginu lágu 50 mál til meðferð-
ar. Þingið stóð í 36 daga og var þvi slitið 24. marz.
Um störf þingsins að öðru leyti og afgreiðslu þeirra
mála, er það tók til meðferðar, visast til Búnaðar-
þingstíðinda, sem eru prentuð i 51. árg. Búnaðarrits-
ins, bls. 171—270.