Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 27
BÚNAÐARRIT
23
1937. Var samþykkt að láta semja rit til minningar
■um hundrað ára starf húnaðarfélagsskaparins. Um
nefndarskipunina og störl' nefndarinnar við samningu
afmælisritsins vísast til skýrslu minnar í 51. árg.
Búnaðarritsins.
Á Búnaðarþingi 1937 var svo ákveðið, að minningar-
hátíð skyldi fara fram 8. júlí, á stofndegi Suðuramts-
ins Húss- og bústjórnarfélags. Kaus Búnaðarþing
nefnd þriggja manna lil aðstoðar stjórn Búnaðarfé-
lags Islands um undirbúning hátiðarinnar, þá Jón
Sigurðsson á Reynisstað, Jakoh H. Líndal á Lækja-
móti og Jón Hannesson. Deildartungu.
Félagsstjórnin ákvað síðan í samráði við nefndina,
nð bjóða helztu búnaðarfélögum á Norðurlöndum að
senda fulltrúa á hátíðina. Ennfremur að þangað yrði
h(jðið öllum núverandi og fyrrverandi húnaðarþings-
fulltrúum, stjórnarnefndarmönnum allra búnaðar-
samhanda, heiðursfélögum Búnaðarfélags íslands og
■öllum starfsmönnum félagsins, fyrr og nú. Ennfrem-
ur ríkisstjórn, horgarstjóra Reykjavíkur, öllum ræðis-
mönnum Norðurlandaþjóðanna og forstöðumönnum
Amissa innlendra stofnana, sem að einhverju leyti
varða Búnaðarfélag íslands, eða störf þess. Þá var
og boðið formönnum allra stjórnmálaflokka, er sæti
eiga á Alþingi.
Þessi erlend húnaðarfélög sendu fulltrúa á hátíð-
ina: Det kongelige danske Landhusholdningsselskab.
Det kongelige Selskap for Norges Vel, Föroya Bún-
■aðarfélag. Finnsku og sænslcu félögin, sem hoðið
var, gátu ekki komið því við að senda fulltrúa.
Hátíðahöldin fóru þannig fram. 8. júlí kl. 1. síðd.,
var haldin minningarsamkoma í sal neðri deildar Al-
þingis. Þar flutti l'ormaður Búnaðarfélags íslands, Þ.
Magnús Þorláksson ræðu og minntist 100 ára starf-
semi húnaðarsamtakanna hér á landi. Hermann Jón-
asson, forsætisráðherra flutti ræðu um störf búnaðar-