Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 37
B Ú N A Ð A R R I T
33
ingu þessari, fyrir hönd félagsins. Eftir sýning-
una fór Magnús til Noregs, og tólc þátt í náms-
skeiði er félagið ,,Norden“ gekkst fyrir að haldið
væri, fyrir búfræðinga af Norðurlöndum. Náms-
skeiðið fór aðallega fram á búnaðarháskólanum á
Ási, en jafnframt var ferðast um Noreg. Magnús
var rúman mánuð í þessari ferð. Búnaðarfélag ís-
lands kostaði förina, enda mætti hann á sýning-
unni sem fulltrúi félagsins.
5. Verklegt nám. Árið 1937 styrkti félagið 7 pilta
til verklegs jarðyrkjunáms og' 17 nemendur til
garðyrkjunáms og veitti þeim styrk að upphæð
kr. 1020.00. Árið 1938 voru 5 piltar styrktir til
jarðyrkjunáms og 19 nemendur til garðyrkju-
náms og þeim veittur samtals styrkur að upp-
liæð kr. 1090.00.
Kennslubúinu í Hril'lu var, samkvæmt áltvörð-
un Búnaðarþings, hvort árið veittur 000 króna
styrkur til tveggja ársnema, eða 300 krónur til
hvors.
Hinum verklegu jarðyrkjunemum, sein félagið
styrkir, er komið fyrir hjá hændum, sem að áliti
stjórnar Búnaðarfélagsins hafa næga þekkingu
og æfingu í jarðrækt, svo og góða aðstöðu að öðru
leyti, til þess að kenna verklega öll helztu jarð-
ræktarstörf.
Flestir garðyrkjunemarnir hafa slundað nám á
vornámsskeiði hjá Ragnari Ásgeirssyni á Laugar-
vatni. Reykjanesskólinn við Isafjarðardjúp
hefir haft garðyrkjunámsskeið bæði þessi ár og
hafa tveir nemendur verið styrktir þar fyrra ár-
ið, en 0 hið síðara. Þá hafa og þrír nemendur
hvort árið stundað garðyrkjunám hjá frú
Kristínu Guðmundsdóttur, ekkju Einars Iielga-
sonar og hefir félagið veitt þeim styrk.
6. Félagið hefir veitt húsmæðraskólanum á Hall-