Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 41
BUNAÐARRIT
37
því svo á, að Búnaðarþing hafi sjálft gengið svo frá
þessu útgáfumáli, að ekki sé við annan aðila að sak-
ast, el' einhverjum kann að þykja að of hárri upp-
hæð hafi verið varið í þessu skyni.
Tilraunaráð.
A Búnaðarþingi 1937 lagði stjórn Búnaðarfclagsins
fram tillögu um skipun tilraunaráðs í jarðræktarmál-
um. Reglur þessar samþykkti Búnaðarþing. Sam-
kvæmt þeim skyldi tilraunaráð skipað 7 mönnum,
forstjórum tilraunastöðvanna á Akureyri og Sámsstöð-
um, búnaðannálastjóra, jarðræktarráðunaut og garð-
yrkjuráðunaut félagsins, einum manni kjörnum af
Búnaðarþingi og einum manni tilnefndum af stjórn
Búnaðarfélags Islands.
Tilraunaráðið var síðan skipað samkvæmt þessum
reglum og sitja það eftirtaldir menn:
Ólafur Jónsson, framkvæmdarstjóri R. NI., Klemenz
Kr. Kristjánsson, tilraunastöðvarstjóri, Sámsstöðum,
Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri, Pálmi
Einarsson, jarðræktarráðunautur, Ragnar Ásgeirs-
son, garðyrkjuráðunautur, Jakob H. Líndal, hóndi,
kosinn af Búnaðarþingi, Þ. Magnús Þorláksson, hóndi
tilnefndur af stjórn Búnaðarfélags íslands.
Tilraunaráðið kom saman á fund í Reykjavik 23.
nóv. 1937 og sat þá að störfum eina viku. Steingrím-
ur Steinþórsson var kosinn formaður ráðsins, en Pálmi
Einarsson, ritari.
Tilraunaráðið tók sér fyrir hendur að alhuga eftir-
töld atriði varðandi jarðræktartilraunir.
1. Um starfsfyrirkomulag þeirrar tilraunastarfsemi
sem nú er gerð hér á landi og samræming á starfi
tilraunastöðvanna og hvernig skipulagi skuli
komið á samvinnu milli þeirra með hliðsjón af
þeirri aðstöðu sem þær hafa.