Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 46
BÚNAÐARRIT
i nefndina: Jón Pálmason, alþingismann og Run-
ólf Sveinsson, skólastjóra, samkvæmt tilnefn-
ingu landbúnaðarnefnda, Halldór Pálsson, ráðu-
naut og Pálma Einarsson, ráðunaut, samkvæmt
tilnefningu Búnaðarfclags íslands, og undirritað-
ann, sem jafnframt var skipaður formaður nefnd-
arinnar. Nefndin kom saman í Reykjavík 14.
ágúst og var þá að störfum í 3 daga. Síðan kom
hún aftur saman í Reykjavík 29. okt. og sat að
störfum til 20. des. Starfi nefndarinnar er ekki
lokið, en ætlun hennar er að leggja tillögur sinar
fyrir ríkisstjórnina áður en Alþingi kemur sam-
an næst.
8. Mórannsöknir. í október 1938 féklc ríkisstjórnin
norskan verkfræðing, A. Ording að nafni, til þess
að koma hingað og athuga möguleika til þess að
vinna hér mó til eldneytis í stórum stíl. Fól ráð-
herra mér, ásamt prófessor G,uðjóni Samúels-
syni, húsameistara að „planleggja“ ferðalag
verkfræðingsins og sjá um rannsóknarstarfið. A.
Ording ferðaðist hér uin í þriggja vikna tíma.
Fór ég með honum um Borgarfjörð og vestur á
Snæfellsnes. Eftir brottför hans hefi ég séð um
að tekin yrðu stór sýnishorn (ca. 500 kg.) frá
nokkrum stöðum, sem verkfræðirignum leist bezt
á að senda til Noregs, svo að þar verði reynt,
hversu vel mórinn reynist til verksmiðjuiðnaðar
(brikettur). Þessi mósýnishorn verða send til
Noregs með fyrstu ferð eftir áramót. Mál þetta
er mjög merkilegt. Eru nágrannaþjóðir okkar
farnar að vinna mó, pressa hann saman í „briket-
tur“, og keppa við kolaverð. Hér er kolaverð mjög
hátt og er þessvegna sjálfsagt að rannsaka mögu-
leika til þess að hagnýta hinar miklu móbirgðir
sem eru í mýrum víðsvegar um landið.
9. Störf í sýningarráði New-York sýningarinnar. í