Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 61
BÚNAÐARRIT
o7
bekkinga, Straumsnesi, mældi ég fyrir 3 lcm ai' þurrk-
skurðum. — í Vík í Mýrdal og Sandgerði mældi ég
fyrir sjóvarnargörðum.
3. Vinna á teiknistofu: Á teiknistofunni vann ég eins
og venja er til að uppdráttum og áætlunum, svaraði
fyrirspurnum, samdi umsagnir o. s. frv.
4. Önnur störf: Á þessu ári var óvenju lítið uin
Iandskipti. Þó var ég við tvenn skipti, er náðn til 5
jarða.
í marzmánuði fór ég austur í Landeyjar, til að yfir-
líta engjaskemmdir al' völdum sandfoks; skilaði ég
nmsögn ásamt tillögum viðvíkjandi endurbótum á
slægjulöndum viðkomandi jarða.
í desembermánuði var mér falið að mæta á deild-
arfundum Vatnafélags Rangæinga. Tólc sú i'crð 7 daga.
Þá hefi ég eins og áður haft umsjón með fram-
kvæmdum í Safamýri. Á þessu sumri, var byggð flóð-
gátt í aðal áveituskurðinn til vatns upptöku úr Ytri-
Rangá. Var flóðgáttin opnuð þ. 25 október og vatni
hleypt í skurðina til að hreinsa þá. Hinsvegar er enn
ekki hægt að halda verulegu vatni á mýrinni, því lit-
ið er um flóðgarða, en þeir, sem þegar eru hlaðnir eru
ógrónir, enda flestir hlaðnir síðastliðið haust, og þola
því ekki vatnsþungann. — í sumar var mikið unnið
að skurðgreftri, en þó er enn ógrafinn einn skurður,
6—7 km að lengd. Þá er og meginið af flóðgörðum
óhlaðið og nokkrar stíflur ógerðar. Má gera ráð fyrir
að þessu verði öllu lokið á næstu 2—3 árum. Þegar
svo er komið, verður væntanlega samin heildar skýrsla
um verkið, og skal því ekki farið um það fleiri orð-
um nú.
Bæði árin hafði ég yfirleitt 1 mann til aðstoðar við
mælingar, nema á Mýrum, þar hafði ég 2 aðstoðar-
menn. .
Asgeir L. Jonsson.