Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 69
BÚNAÐARRIT
(5ó
Um tvö hin fyrrnefndu er þó vitað að þau eru all-
næm fyrir kartöflumyglu, en það verður að teljast
mikill ókostur á afbrigðum sem rækta á sunnanlands,
í „myglusveitum“ — því veðurfar getur orðið svo ó-
hagstætt að kemiskum vörnum verði ekki við komið.
Þá voru hér einnig til athugunar 3 ný kartöfluaf-
brigði, frá Pétri Eggerz á Hánefsstöðum, hin fyrstu
sem hér hafa orðið til, vaxin upp af t'ræi.
Er hið fyrsta þeirra rautt á lit aflangt. Grashæð var
í surnar (>5 cm., litur blóma dökkfjólublár og það var
íilveg sérstakt við þetta afbrigði, að það bar þorskaða
óvexti (ber) í miðjum ágúst. Að jal'naði voru <3 kart-
öflur undir hverju grasi. Undan grasi komu til jafn-
aðar 307 gr. en það svarar til 245 kg af 100 m2, með
50X25 cm. vaxtarrými.
Hið annað var gult á lit og hæð grasa 40 cm., blóm
sprungu ekki út vegna næturfrosta. Að jafnaði voru
10 kartöflur undir grasi og þungi þeirra 360 gr.; sem
svarar til 288 kg af 100 m2.
Hið þriðja var blált að lit og kartöflurnar aflangar,
mjórri í annan endann, minna dálítið á Shetland Blue
(Blálandskeisara). Hæð grasa 40 cm., blóingaðist ekki.
Að jafnaði 9 kart. undir hverju grasi, að þyngd alls
400 gr. en það svarar til 320 kg uppskeru að 100 m2.
Um afbrigðin verður að öðru leyti fátt sagt hcr að
þessu sinni, því þau náðu auðvitað ekki eðlilegum
þroska hér í sumar vegna næturfrostanna, en fljótt
á litið leizt mér hezt á hið rauða og það bláa.
Þá hafa staðið hér yfir, bæði árin, samanburðartil-
raunir með húsdýraábyrð og tilbúinn áburð, en frá
niðurstöðum af þeim mun ég greina annarsstaðar.
Ragnar Ásgeirsson.