Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 79
BÚNAÐARRIT
75
Sýningarnar voru yfirleitt ágætlega sóttar, enda eru
margir ágætir bændur á þessu svæði, sem hafa mikinn
áhuga fyrir búslcapnum og þá auðvitað sérstaklega
fyrir kynbótum og góðri meðferð búfjár.
Alls voru sýndir 1810 hrútar, þar af hlutu 132 fyrstu
■verðlaun. Þessir hrútar slciptast þannig á sýslur:
í Suður-Þingeyjarsýslu . .. 391 hrútur ]>ar af 71 1. verðlaun
í Norður-Þingeyjarsýslu . . 186 — 14 I.
í Norður-Múlasýslu . 600 — 24 I. —
f Suður-Múlásýslu . 437 — 21 I. —
f Austur-Skaftafellssýslu . 202 — 2 1. —
Eg mun gefa skýrslu um sýningarnar, ásamt grein-
nrgerð um, eftir hvaða reglum hrútarnir voru dæmd-
ir, og almennu yfirliti um kosti og galla fjárins á
þessu svæði, í sérstakri grein, sem mun verða birt í
Búnaðarritinu eða Frey.
Á sýningarferðum mínum þetta haust heimsótti
-ég 4 sauðfárræktarbúin, sem styrlcs njóta samkvæmt
búfjárrælctarlögunum, og skoðaði féð á þeim. Það
voru búin, á Þórustöðum í Eyjafirði, Stafafelli og
Brekku í Lóni og á Höfðabrekkru í Mýrdal.
Hefi ég því séð fjárstofninn á öllum sauðfjárrækt-
íirbúunum, því að haustið 193G heimsótti ég þau
<ill að undanteknum búunum í Austur-Skaftafells-
sýslu.
Ég mun legga fyrir stjórn Búnaðarfélags Islands,
áður en Búnaðarþing kemur saman, álit mitt á gagn-
semi þessara fjárræktarbúa, lcostum og göllum fjár-
stofnanna, og gera ef til vill einhverjar breytingar-
tillögur um starfrækslu búanna framvegis. Slcýrslur
fjárrælctarbúanna fyrir tvö s. 1. ár mun ég láta fylgja
því áliti.
Á fundi stjórnar Búnaðarfélags íslands i nóvember-
mánuði var samþykkt tillaga frá mér um að styrkja
•eitt nýtt sauðfjárrælctarbú að Grænavatni í Mývatns-
sveit.