Búnaðarrit - 01.01.1939, Side 96
92
BUNAÐARRIT
i
grasi, hávingul, háliðagrasi, rýgresi og mjúkfaxi. í
meðalárum getur grasfrærækt vel svarað kostnaði af
þessum 6 tegundum fóðurgrasa, og fræið orðið það
gott að ekki standi mikið að haki erlendu fræi sömu
tegunda, þó hygg ég að hér verði hægt að hæta um
hvað gæði fræsins snertir með bættri ræktun og bættri
meðferð á fræinu (aukaþurrltun).
Það grasfræ, sem ég hefi rannsakað frá Norður-
landi, bendir eindregið í þá átt að skilyrðin i'yrir gras-
frærækt þar séu að öllum jafnaði betri en hér sunnan-
lands. En um þetta atriði þyrfti að gera víðtækari til-
raunir. Tíðarfar er þar þurrviðrasamara en á Suður-
urlandi, en það er mikilsvert atriði fyrir fræsprett-
una að votviðri séu sem minnst í júlí og ágúst eðaþann
tíma, sem fræið er að þroskast og svo yfir fræskurðar-
og þurrkunartímann, sem i öllum meðalsumrum er
um og eftir miðjan ágúst. Tvö undanfarin sumur hefir
vallarfoxgras og axhnoðapuntur ekki náð likt því full-
um þroska, og hefir þvi eigi verið rannsakað fræ af
þeim. Góðu sumurin 1934, 1935 og 1936 þroskuðu
háðar þessar tegundir fullþroska fræ, en grómagnið
reyndist oftast mjög lágt, enda náðu þær eigi fullum
þroska fyrr en rétt fyrir iniðjan september. Fræ-
magn beggja þessara tegunda reyndist það lítið
að þó að allt annað hefði verið í fullu lagi Iiefði eigi
svarað kostnaði að ræktá fræ af þeim.
Eins og að undanförnu hefir tilraunum með ýmsar
grastegunilir, sáðaðferðir fyrir grasfræ o. fl., verið
haldið áfram. Hvort árið hafa tilraunareitir verið 86
talsins. Auk þess hefir verið haldið áfram úrvali á
túnvingul, vallarsveifgrasi, háliðagrasi og hávingul.
Er hér ærið verkefni að vinna, því miklu skiptir að
hægt verði að bæta grasakynin vegna fræræktar og
túnræktar.
Árangur sá, sem fengizt hefir undanl'arin ár af
kynbótatilraununum, er ekki mikill, cn hann stefnir