Búnaðarrit - 01.01.1939, Page 104
100
BÚNAÐARRIT
Kornþyngdin er að vísu fremur Iág fyrir byggið en
hafrarnir elckert léttari en sömu tegundir ræktaðar í
Noregi.
Þó að kornræktin 1937 hafi eigi heppnast sem
skyldi, virðist þó mega álykta, að hér hafi eigi orðið
meiri vanhöld en stundum kemur fyrir i kornrækt-
arlöndunum. Verður að telja, að reynsla áranna 1923
til 1930 sanni ótvírætt að kornyrkja miðuð við full-
þroskun byggs og hafra geti átt góða framtíð á Suð-
urlandi og öðrum veðursælli sveitum landsins. Aðal-
atriði er, að kornræktin verði rekin sem einn liður
i ræktunarframkvæmdum hænda, og i hentugu sáð-
skipti með karföflum og smáratúnrækt. Kornræktin
1938 hefir gengið að óskum, helmingur kornræktar-
innar var á nýbrotnu landi, og hefir það sett, sem
að venju uppskeruna nokkuð niður. Vorið var kalt
og sumarið allt. Byggi og höfrum var sáð mestöllu
fyrir 3. maí, og var komið upp í öllum ökrum frá
18.—25. maí, gekk því hægt með spírun fræsins í
moldinni vegna vorkuldanna, en þetta sakaði ekki,
annað en seinkaði sprettunni. Bygg skreið í síðara
lagi eða 11.—17. júní. Tvíraða bygg og hafrar skriðu
frá 17. til 27. júlí. Byrjað var á kornuppskerunni
fyrstu dagana í septeinber og lokið 7. okt. Varð nýt-
ing góð því allur fyrri hluti október var þurrviðrasam-
ur og var allt korn komið í hús 1 (». okt. Kornland
stöðvarinnar og uppskera var sem hér greinir:
Korn Kg korn
Ha alls Ug af ha
MetS byggtegundum . 3,8373 63,20 1663
— hafratcgundum . 2,8669 72,70 2507
— vetrarrúgi . 9,4800 2,00 420
7,4842 137,90
Auk þess kom af þessu landi rúml. 300 hestb. af
kornhálmi.
Kornið allt er vel þroskað, og stendur að því er mér